Fá engar bætur fyrir stolin bíl Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. maí 2025 21:03 Hjónin keyptu tryggingarnar sínar hjá TM. Vísir/Rakel Ósk Guðbrandur Jónatansson og konan hans lentu í óheppilegu atviki þegar bílnum þeirra var stolið á meðan þau bjuggu á Spáni. Þau keyptu allar nauðsynlegar tryggingar en samt sem áður ætlar TM ekki að bæta þeim tapið.
Þau hjónin ákváðu að flytja til Spánar og vera þar í nokkra mánuði yfir vetrartímann líkt og ófáir ellilífsþegar gera. Hjónin tóku með sér glænýjan bíl af gerðinni Toyota RAV4 sem þau höfðu eignast um ári áður en eftir fjögurra mánaða dvöl á Spáni var bílnum stolið. „Við keyrðum heim og ég fer inn í læsta girðingu með bílinn og læsi honum þar. Þá var klukkan tólf mínútur yfir átta. Síðan upp úr níu um kvöldið var honum stolið, innan girðingar,“ segir Guðbrandur í viðtali í Bítinu á Bylgjunni. Daginn eftir fór hann út með rusl og kom að tómu stæði. „Bíllinn er horfinn. Þessi mynd er ennþá í hausnum á mér. Ég fékk algjört sjokk,“ segir hann. Þau fóru niður á lögreglustöð á Spáni og tilkynntu þjófnaðinn. Guðbrandur sendi svo lögregluskýrsluna á tryggingarfélag þeirra hjóna, TM. Fyrir ferðina keypti hann aukalega kaskó tryggingu fyrir bílinn og sérstaka tryggingu fyrir dvöl á Spáni sem var lengur en níutíu dagar. „Út af því að kaskóið nær ekki til Spánar. En ef ég hef keyrt á bíl og skaddað allt lífið þá er það bætt. En bíllinn minn sem er horfinn, hann er ekki bættur.“ Ætlar í mál við TM Hjónin voru í nokkur ár að safna fyrir bílnum en sjá ekki fram á að geta keypt annan slíkan með ellilífeyristeknum sínum. Guðbrandur hefur því haft samband við lögfræðing og ætlar að kæra TM. „Þetta eru svo miklir peningar fyrir okkur,“ segir Guðbrandur. Hann þekki til fólks sem hafi lent í sömu aðstæðum en hafi verið tryggð hjá öðrum tryggingafyrirtækjum og þau hafi fengið bílinn bættan. „Við vissum um tvo einstaklinga. Annar fékk hann strax bættan og þessi seinni var hjá Sjóvá og það var sagt nei við hann. En hann hélt áfram að rífast við þau,“ segir hann. Til þess að lögsækja TM þarf lögfræðingur Guðbrands að fá allar upplýsingar skriflegar. „Ég er nýbúin að fá tilkynningu frá TM að bíllinn verði ekki bættur.“ Í bílnum hafi einnig verið sérstök sólgleraugu hjóna og útifatnaður frá 66 gráðum Norður. Í svari TM hafi komið fram að þau fengju hlutina hugsanlega bætta en að hans sögn er það enn á reiki.
Tryggingar Bílar Spánn Bítið Mest lesið Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira
Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent
Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent