Körfuboltakvöld: Maður leiksins í Þorlákshöfn mætti í settið | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2016 10:45
Kári Jónsson átti frábæran leik þegar Haukar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Domino's deildar karla með fjögurra stiga sigri, 96-100, á Þór í Þorlákshöfn í gær. Kári byrjaði á bekknum líkt og í þriðja leiknum í einvíginu en kom fljótlega inn á. Þessi 18 ára strákur var með átta stig í hálfleik en í seinni hálfleik var hann sjóðheitur og skoraði 20 stig. Kári lauk leik með 30 stig, átta fráköst og fjórar stoðsendingar og var stigahæstur allra á vellinum. Strákarnir í Domino's Körfuboltakvöldi völdu Kára mann leiksins í gær og hann mætti í settið til þeirra eftir leik. „Ég er mjög glaður og sérstaklega yfir karakternum í liðinu. Við erum 14 stigum undir í hálfleik, enginn Kani og þeir að eiga dúndurleik. Það voru ekki margir sem höfðu trú á okkur þarna en við stigum virkilega upp og vörnin okkar var frábær í seinni hálfleik,“ sagði Kári um leikinn í gær sem var rosalegur. Til marks um það skiptust liðin 14 sinnum á forystunni í leiknum og 13 sinnum var staðan jöfn. Lokamínúturnar voru gríðarlega spennandi og úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu þar sem Haukar reyndust sterkari. Kári meiddist í fyrsta leiknum gegn Þór eftir harða hindrun frá Ragnari Nathanealssyni. Hann missti af þeim sökum af leik tvö en spilaði mikið í tveimur síðustu leikjunum í einvíginu þrátt fyrir að byrja á bekknum í þeim báðum. Kári segist vera búinn að ná sér að mestu leyti af meiðslunum. „Ég er aumur í öxlum og aðeins í baki,“ sagði Kári áður en Fannar Ólafsson stoppaði hann af og sagði honum að hætta að væla. „Nú ég ætla ég að kenna þér eitt. Nú skaltu hætta þessu væli. Þú ert að fara alla leið núna,“ sagði gamli landsliðsmiðherjinn við Kára sem var valinn besti leikmaður seinni hluta Domino's deildarinnar fyrr í mánuðinum.Viðtalið við Kára má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Mest lesið Enginn ákærður vegna andláts Adam Johnson Sport Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 105-104 | Lygilegar lokamínútur Körfubolti Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann Íslenski boltinn „Þetta er úrslitakeppnin og hlutir gerast“ Körfubolti Valur í kjörstöðu gegn ÍR Handbolti Sigtryggur Arnar eignaðist strák rétt fyrir stórleik kvöldsins Körfubolti Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni Íslenski boltinn Mark snemma leiks gerði gæfumuninn Fótbolti Upgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi Íslenski boltinn Uppgjörið: Haukar - Fram 25-24 | Orkufrekur eltingaleikur Handbolti Fleiri fréttir „Þetta er úrslitakeppnin og hlutir gerast“ Sigtryggur Arnar eignaðist strák rétt fyrir stórleik kvöldsins Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 105-104 | Lygilegar lokamínútur Þinglegur stuðningur við Tindastól fyrir kvöldið NBA viðurkennir dómaramistök á ögurstundu hjá Luka og Lakers „Þetta er hreinn og klár glæpur“ „Létum hluti sem við stjórnum ekki fara of mikið í taugarnar á okkur“ Hnefarnir látnir tala í Umhyggjuhöllinni Fór ekki í sturtu fyrr en sjö um morguninn eftir eitt erfiðasta tapið á ferlinum Mesta rúst í sögu NBA Skýrsla um Brynjar Karl: Geri tilraunir með börn og skorti fræðilegan grunn „Stoltur af leikmönnum og stuðningsmönnum“ „Stóðumst áhlaupin betur að þessu sinni“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 91-105 | Grindavík hélt sér á lífi með langþráðum sigri utan heimabæjarins Lögmálið: Þjálfari Lakers féll á prófinu Dómarar viðurkenndu að hafa gert mistök Tímabilið líklega búið hjá Lillard „Mamma kenndi mér að leika ekki með matinn“ Lakers sprungu og eiga bara eina líflínu Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 101-89 | Njarðvík með sópinn á lofti Sá tíundi í röð hjá Jóni Axel og félögum eftir dramatík í lokin Almar Orri til Miami háskólans „Get ekki sagt að þetta hafi verið auðvelt“ Ármann í úrslit um sæti í efstu deild Uppgjörið: Haukar - Valur 79-64 | Sópurinn á lofti í Ólafssal Elvar stigahæstur í öruggum sigri „Ég saknaði þín“ Stórleikur LeBron James dugði ekki Lakers og Celtics töpuðu líka „Hann er tekinn út úr leiknum“ „Ég get ekki lýst þessu, ég á engin orð“ Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 91-105 | Grindavík hélt sér á lífi með langþráðum sigri utan heimabæjarins