Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Prúðbúnir listunnendur fjölmenntu í Borgarleikhúsinu í vikunni þegar nýjasta verk Íslenska dansflokksins, Hringir Orfeusar og annað slúður, var frumsýnt. Auk frumsýningarinnar tók Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, nýskipaður listdansstjóri, formlega við embætti af Ernu Ómarsdóttur sem er jafnframt höfundur verksins. Lífið 1.4.2025 13:21
Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Verkið Fjallabak var frumsýnt í Borgarleikhúsinu síðastliðið föstudagskvöld fyrir troðfullum sal gesta. Verkið byggir á samnefndri Pulitzerverðlauna smásögu Annie Proulx og síðar gerði kvikmyndaleikstjórinn Ang Lee kvikmyndina Brokeback Mountain eftir sögunni. Í pistlinum má sjá stiklu úr leikritinu. Menning 1.4.2025 11:31
Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Fjórir vel þekktir kvikmyndaleikarar hafa verið ráðnir til að túlka sjálfa Bítlana – þá Paul McCartney, John Lennon, George Harrison og Ringo Starr – í nýjum kvikmyndum bandaríska leikstjórans Sam Mendes sem áætlað er að verði sýnd 2028. Bíó og sjónvarp 1.4.2025 08:54
Stjörnulífið: Eddan, rauðar blúndur og afmæli í París Viðburðarík vika er nú að baki þar sem Edduverðlunin, árshátíðir stórfyrirtækja og önnur veisluhöld vöktu athygli. Íslendingar eru þó alltaf á faraldsfæti og var fólk ýmist að sleikja sólina við sundlaugarbakkann eða spóka sig um evrópskar stórborgir. Lífið 31. mars 2025 10:48
Vorbókaleysingar Undir lok síðasta árs mátti sjá á samfélagsmiðlum fólk víða um heim dást að hinu íslenska jólabókaflóði. Vissulega kann að vera að ást Íslendinga á bókum í aðdraganda jóla sé örlítið ýkt í hugum fólks erlendis. Skoðun 31. mars 2025 10:04
VÆB-bræður fyrstir á svið í Eurovision Framlag Íslands í Eurovision í ár – lagið Róa með bræðrunum í Væb – er fyrsta lagið sem flutt verður á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision sem fram fer í svissnesku borginni Basel í maí. Lífið 31. mars 2025 07:09
Richard Chamberlain er látinn Bandaríski leikarinn Richard Chamberlain, þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttaröðunum Dr. Kildare, Shogun og The Thorn Birds, er látinn 90 ára að aldri. Lífið 30. mars 2025 14:59
Úr svefnherbergispoppi í drum-n-bass: „Fólkið var ógeðslega mikið að fíla þetta“ KUSK og Óviti gáfu nýverið út „LÆT FRÁ MÉR LÆTI“ sem er fyrsta lagið af komandi breiðskífu þeirra, RÍFAST. Platan markar stökk úr svefnherbergispoppi í taktfasta raftónlist og sækir innblástur í rifrildi fólks. Lífið 30. mars 2025 10:02
Adolescence: Börn ekki lengur örugg ein inni í herbergi Börn eru ekki lengur örugg þar sem þau sitja ein inni í herberginu á heimili sínu. Þau lifa við allt annan veruleika en börn hafa lifað við hingað til. Sum geta eytt meiri tíma með karakterum á borð við Andrew Tate á netinu heldur en með eigin foreldrum í rauntíma. Þetta er meðal þess sem lesa má úr skilaboðum leiknu Netflix þáttaraðarinnar Adolescence sem slegið hefur í gegn. Lífið 30. mars 2025 07:03
Halda tíu tíma maraþontónleika Hljómsveitin Supersport! stendur fyrir maraþonútgáfutónleikum í dag. Haldnir verða tíu tónleikar á tíu klukkutímum. Einn meðlima lofar tíu tímum af tónlistarveislu en verðlaun séu í boði fyrir þann sem situr alla tónleikana. Lífið 29. mars 2025 14:30
„Ég verð dauður áður en kvikmyndahúsin loka“ Finninn Mika Juhani Kaurismäki er frumkvöðull í kvikmyndagerð. Hann, ásamt yngri bróður sínum Aki, hristu af sér ok Sovéttímans á sínum tíma sem lá eins og mara yfir finnsku þjóðlífi og breyttu finnskri kvikmyndagerð svo um munar. Segja má að þeir hafi samhliða breytt kvikmyndagerð í allri Skandinavíu og víðar. Áhrif þeirra bræðra verða seint ofmetin. Menning 29. mars 2025 08:02
„Ástarsorg er best í heimi“ „Það var ömurlegt að vera á ótrúlega dimmum stað. En þetta þroskaði mig svo ótrúlega mikið og ég er þakklát að fá að segja mína sögu í gegnum tónlistina,“ segir hin 25 ára gamla Kolfreyja Sól Bogadóttir, jafnan þekkt undir listamannsnafninu Alaska 1867. Hún hefur rutt sér til rúms í íslensku tónlistarlífi eftir margra ára undirbúning en fyrsta breiðskífan hennar 222 kom út í febrúar. Lífið 29. mars 2025 07:04
Bitin Bachelor stjarna Bachelor stjarnan Sean Lowe er á batavegi eftir að hundur hans réðist á hann og beit hann tvisvar á einum sólarhringi illilega á heimili hans fyrr í þessum mánuði. Piparsveinninn fyrrverandi hafði nýlega ættleitt hundinn og segir hann ljóst að eitthvað mikið hafi gengið á í lífi dýrsins. Lífið 28. mars 2025 08:32
Svara auknum fordómum og fáfræði með jákvæðni og list Listamarkaðurinn Litrófan verður haldinn í fyrsta sinn á laugardaginn í húsnæði Borgarbókasafnsins í Grófinni. Vinirnir Elísabet Jana Stefánsdóttir og Kjartan Valur Kjartansson skipuleggja markaðinn sem er sérstaklega fyrir hinsegin og skynsegin listamenn. Þau segja markaðinn sitt svar við auknum fordómum og fáfræði gegn jaðarsettum hópum. Lífið 28. mars 2025 07:02
Beinir spjótum sínum að Smithsonian og „sögufölsunum“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út enn eina forsetatilskipunina þar sem hann meðal annars felur varaforsetanum J.D. Vance að uppræta „and-bandaríska hugmyndafræði“ á yfir tuttugu söfnum og rannsóknarstofnunum Smithsonian. Erlent 28. mars 2025 07:00
Harmsögur af stríði, fjöldagrafir og tíðar árásir taka á líkama og sál Það étur mann upp andlega og líkamlega að segja fréttir frá stríði. Þetta segir Íslendingur búsettur í Úkraínu sem hefur fjallað um stríðið frá upphafi allsherjarinnrásar. Mikilvægt sé að gera sér grein fyrir umfangi stríðsins og því að Úkraína sé ekki aðeins að verja eigin land, heldur einnig Evrópu. Innlent 27. mars 2025 21:32
Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Christopher Nolan hyggst taka upp stórmynd sína Odyssey hér á landi í júní. Tökur munu fara fram á Suðurlandi en um er að ræða þriðja skiptið sem leikstjórinn tekur upp kvikmynd sína hérlendis. Bíó og sjónvarp 27. mars 2025 15:01
Lovísa Ósk nýr listdansstjóri Íslenska dansflokksins Lovísa Ósk Gunnarsdóttur hefur verið skipuð í embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins. Logi Einarsson, M-menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur skipað hana í embættið frá og með 1. ágúst næstkomandi. Í tilkynningu stjórnarráðsins kemur fram að alls hafi borist átta umsóknir um starfið. Menning 27. mars 2025 13:51
Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Ljósbrot var valin besta mynd ársins á Eddunni en í heildina fékk myndin fimm verðlaun. Það var þó Snerting sem fékk flest verðlaun þetta árið eða tíu stykki. Bíó og sjónvarp 26. mars 2025 22:35
Walliams furðar sig á vinsældum eigin frasa á Íslandi David Walliams, breski grínistinn og rithöfundurinn, segir það áhugavert að frasi úr bresku gamanþáttunum Little Britain sé notaður í daglegu tali á Íslandi, tveimur áratugum eftir að hann var fyrst kynntur til leiks. Þetta kom fram í nýlegu hlaðvarpi Robs Brydon. Lífið 26. mars 2025 13:44
Klara og félagar í uppreisn gegn „femínistaþreytunni“ „Við vitum af eigin reynslu hversu gríðarlega mikilvæg þessi „ósýnilegu“ störf eru og hversu mikla fagmennsku og sköpunargáfu þau krefjast sem og úthalds,“ segir Klara Elíasdóttir tónlistarkona og lagahöfundur sem hefur ásamt fjórum öðrum listakonum sett af stað hlaðvarpið Á bak við tjöldin. Lífið 26. mars 2025 07:00
Næstu dagar ráða úrslitum um framtíð Kvikmyndaskóla Íslands Þrátt fyrir að framtíð sé óráðin um rekstur Kvikmyndaskóla Íslands er samt hægt að sækja um nám á vef skólans. Opið er fyrir umsóknir fyrir haustönn 2025 sem hefst 14. ágúst. Innlent 25. mars 2025 12:12
Segist vera orðinn of gamall Bandaríski leikarinn George Clooney segist vera hættur að leika í rómantískum gamanmyndum. Hann segir ástæðuna einfaldlega vera aldurinn. Lífið 25. mars 2025 11:31
Enginn dæmir neinn á vikulegum geislasverðaæfingum Áhugamenn um bardaga með geislasverðum hittast einu sinni í viku og æfa sig. Forsprakki hópsins segir eitt markmiðanna vera að leyfa fólki að hafa gaman án þess að verið sé að dæma það. Lífið 25. mars 2025 10:31