Karl Garðarsson svekktur út í Sigmund: „Hann ræddi ekki við mig allavega“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. apríl 2016 12:28 Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. vísir/gva
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er ekki sáttur við þá stöðu sem komin er upp en formaður flokksins og forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fundaði með forseta Íslands, á Bessastöðum eftir athyglisverða Facebook-færslu fyrr í dag. Karl sagði í viðtali við RÚV í hádeginu að það væri hans skoðun að ríkisstjórnin ætti að sitja áfram. Sigmundur Davíð hefði notið trausts en þingmenn hefðu litið svo á að hann þyrfti að gera hreint fyrir sínum dyrum. Þingflokksfundur Framsóknarflokksins stendur nú yfir. Karl segir flokkana tvo hafa unnið mörg góð verk og leggja ætti áherslu á að ljúka þeim verkum sem þegar eru hafin. „Þetta kom mér svolítið á óvart,“ segir Karl um Facebook-færslu Sigmundar Davíðs í dag þar sem hann sagðist tilbúinn að rjúfa þing nyti flokkurinn ekki lengur stuðnings þingmanna Sjálfstæðisflokksins. „Staðan núna er mjög óljós og við þurfum að fá skýringar frá Sigmundi um hvað býr að baki hjá honum.“ Karl segir að hann hefði gert hlutina öðruvísi en Sigmundur. Aðspurður hvort hann væri ósáttur sagði Karl að Sigmundur hefði átt að ræða við þingflokkinn fyrst. Einar Þorsteinsson, fréttamaður RÚV, gekk á Karl og spurði hvort Sigmundur hefði ekkert rætt við þingflokkinn eftir fundinn með Bjarna og fyrir Facebook-skrifin? „Ekki við mig allavega.“
Panama-skjölin Mest lesið Leigubílstjóri og vinur hans dæmdir fyrir nauðgun Innlent „Vladímír, HÆTTU!“ Erlent Árásarmaðurinn trúverðugur en sá sem var stunginn misvísandi Innlent Umræða um gróf kynferðisbrot eigi ekki að snúast um þjóðerni gerenda Innlent Meintir hópnauðgarar á bannlista skemmtistaðar Innlent Einn handtekinn þegar sérsveitin aðstoðaði í Árnessýslu Innlent Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Innlent Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisáreitni gegn barni Innlent Svara ákalli foreldra Innlent Dæmdur kardínáli segist mega kjósa næsta páfa Erlent Fleiri fréttir Setja þurfi skýrar reglur um sæðisgjöf á Íslandi Alvarlegt ef þrefalda á strandveiðikvóta á kostnað annarra „Fúsi, aldur og fyrri störf” á Sólheimum um helgina Meintir hópnauðgarar á bannlista skemmtistaðar Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisáreitni gegn barni Ósáttur Bandaríkjaforseti og sumarsól Vasaþjófur handtekinn í miðborginni Árásarmaðurinn trúverðugur en sá sem var stunginn misvísandi Ármann Leifsson nýr forseti Röskvu Einn handtekinn þegar sérsveitin aðstoðaði í Árnessýslu Svara ákalli foreldra Fjölbreytt dagskrá á vorhátíð í Árborg Umræða um gróf kynferðisbrot eigi ekki að snúast um þjóðerni gerenda Miður að hópnauðganir séu nýttar til að kynda undir útlendingahatur Leigubílstjóri og vinur hans dæmdir fyrir nauðgun Kastaði eggjum í bíl Þurrt og léttskýjað á sumardaginn fyrsta „Það er leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki“ Rannsóknaraðgerð lokið en málið enn til rannsóknar Þrír menn til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Gríðarlegir fjármunir sveitarfélaga í öryggisvistanir Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Milljarður í kostnað vegna öryggisvistunar og húðflúr í beinni Eva Georgs ráðin dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV Mótmæla hagræðingum og segja þær bitna á konum Skóflustunga að padelveislu í Kópavogi Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Ríkissaksóknari staðfestir niðurfellingu í stórri slysasleppingu Tíufréttir heyra sögunni til Sjá meira