Hetja Blika um sigurmarkið: „Rugluð tilfinning“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 9. júní 2016 23:03
Hinn 16 ára gamli Ágúst Eðvald Hlynsson var hetja Blika þegar hann tryggði þeim sæti í átta liða úrslitum Borgunarbikarsins með marki í framlengingu gegn ÍA. Hann hefur nú skorað tvö mörk í þeim þremur meistaraflokksleikjum sem hann á að baki. „Þetta var rugluð tilfinning, alveg geðveikt,“ segir Ágúst í viðtali við Vísi eftir leikinn. Mark hans var afar laglegt en hann fékk boltann í þröngri stöðu í markteignum umkringdur leikmönnum en náði að snúa boltann framhjá Árna Snæ í marki Skagamanna á ótrúlegan hátt. Pabbi Ágústs er gamla kempan Hlynur Eiríksson sem á árum áður lék með FH og Þór og þjálfaði meðal annars kvennalið Breiðabliks. Hann var unglingalandsliðsframherji áður en hann færði sig í vörnina en Ágúst segist ekki hafa fengið markanefið frá honum. „Nei, ég lærði þetta ekki af honum, hann skoraði engin mörk,“ segir Ágúst hlæjandi en hann er viss um að hann sé í rétta liðinu til þess að þróa sína hæfileika. „Það er frábært að spila með þessum leikmönnum. þeir styðja frábærlega við mann og hópurinn er mjög þéttur.“ Þeir þurfa þó að halda Ágústi á jörðinni en ljóst er að þar er gríðarmikið efni á ferð. Leikmenn ÍA voru mjög hrifnir af honum en blaðamaður heyrði þá ræða við Árna Snæ, markmann ÍA, hversu vel Ágúst hafi gert í því að koma boltanum í markið. Ágúst er einnig alveg með á tæru hvert markmiðið í þessari keppni sé. „Bikarinn er markmiðið. Vonandi förum við alla leið,“ sagði hetja kvöldsins.
Mest lesið Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn Körfubolti Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Íslenski boltinn „Svona er úrslitakeppnin“ Handbolti ÍR í undanúrslit eftir sigur með minnsta mun Handbolti „Við töpum boltanum í annarri hverri sókn“ Körfubolti Dramatík í Manchester Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Haukar 80-82 | Köstuðu sigrinum frá sér og klikkuðu á vítunum Körfubolti Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-6 | Áslaug Dóra með þrennu í stórsigri Víkinga Íslenski boltinn Uppgjörið: Afturelding - Valur 31-23 | Mosfellingar jöfnuðu metin með stæl Handbolti Fleiri fréttir Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi „Fótbolti er þannig að allir þurfa að taka ábyrgð“ Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-6 | Áslaug Dóra með þrennu í stórsigri Víkinga „Skoraði síðast þrennu í sjöunda flokki“ Stutt stopp í Vesturbæ: Valor aftur til Eyja Uppgjörið: Fram - FH 0-2 | Nýliðarnir enn án sigurs Leikmenn ÍBV hjálpuðu til við að færa sætin á milli valla í Eyjum Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR ÍA og Vestri mætast inni Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Sjá meira