Smávaxna fimleikadrottningin sem er að sigra heiminn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2016 14:29 Biles með gullmedalíuna sína. vísir/getty
Bandaríska fimleikakonan Simone Biles er ein af stjörnum Ólympíuleikanna í Ríó til þessa. Þessi 19 ára fimleikadrottning, sem er aðeins 1,45 m á hæð, hefur slegið í gegn í Ríó og sýndi glæsileg tilþrif þegar bandaríska liðið vann öruggan sigur í liðakeppni áhaldafimleika í fyrradag. Biles á eftir að keppa á nokkrum greinum á Ólympíuleikunum og á eflaust eftir að bæta fleiri verðlaunum í safnið á næstu dögum. Það er þó ekki eins og Biles hafi skotist fyrst fram á sjónarsviðið á þessum Ólympíuleikum. Hún hefur verið í fremstu röð í fimleikaheiminum undanfarin ár og er sigursælasta Bandaríkjakonan í sögu HM með 14 medalíur, þar af 10 gull. Hún var jafnframt fyrsta konan sem vinnur þrjá heimsmeistaratitla í samanlögðum æfingum í röð.Biles hefur ótrúlega stjórn á líkama sínum.vísir/gettyBiles er talin ein besta fimleikakona allra tíma og Nastia Liukin, gullverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum 2008, segir að eins og staðan sé í dag sé hún ósigrandi. Öfugt við margt annað fimleikafólk er Biles mjög fjölhæf og sterk í mörgum greinum. Hún hefur t.a.m. unnið til gullverðlauna á HM í öllum greinum nema á tvíslá. Biles fæddist 14. mars 1997 í Columbus í ríkinu Ohio. Hún ólst upp hjá afa sínum og stjúpömmu í Texas en móðir hennar var ófær um að sjá um hana og systkini hennar vegna eiturlyfjafíknar. Föður sinn hitti hún aldrei. Afi og stjúpamma Biles ættleiddu hana og systur hennar árið 2003, sama ár og hún byrjaði að æfa fimleika, sex ára gömul. Þegar hún var átta ára byrjaði hún að æfa undir handleiðslu Aimee Boorman sem hefur verið þjálfari hennar allar götur síðan.Biles á eflaust eftir að bæta fleiri Ólympíumedalíum í safnið á næstu dögum.vísir/gettyBiles sýndi mikinn metnað fyrir íþróttinni og í stað þess að fara í menntaskóla var henni kennt heima. Þetta gerði Biles kleift að æfa meira og það bar svo sannarlega árangur, þótt hún viðurkenni að hafa fundist heimakennslan leiðinleg. Biles þreytti frumraun sína á HM árið 2013, þegar hún var aðeins 16 ára gömul. Og hún gerði sér lítið fyrir og vann til tveggja gullverðlauna. Biles varð m.a. fyrsta blökkukonan til að verða heimsmeistari í samanlögðum æfingum. Biles bætti um betur á HM 2014 þegar hún vann fern gullverðlaun og var þar með orðin sigursælasti Bandaríkjamaðurinn á HM frá upphafi með sex gullverðlaun. Sex gull urðu svo að 10 á HM 2015 þar sem Biles vann til fernra gullverðlauna. Biles er nú byrjuð að láta að sér kveða á allra stærsta sviðinu, sjálfum Ólympíuleikunum, og stjarna hennar skín skærar en nokkru sinnum fyrr.Hér að neðan má sjá skemmtilegan heimildaþátt sem ESPN gerði um Simone Biles og leið hennar á toppinn.
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Dagskráin í dag: Formúla 1 og NBA á Páskasunnudegi Sport Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Fótbolti Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Körfubolti Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Körfubolti Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Fleiri fréttir Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Dagskráin í dag: Formúla 1 og NBA á Páskasunnudegi Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjá meira