Umfjöllun: Ísland - Slóvenía 25-26 | Grátlegt tap í bardaga gegn Slóveníu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. janúar 2017 15:15 Íslensku strákarnir spiluðu góða vörn í leiknum. Hér taka Rúnar Kárason og Arnór Þór Gunnarsson á Slóvena. vísir/epa
Strákarnir okkar urðu að sætta sig við tap í æsilegum slag gegn Slóveníu í dag. Lokatölur 25-26, Slóvenum í vil. Strákarnir gáfu allt sem þeir gátu en það vantaði gamla góða herslumuninn og grátlegt tap niðurstaðan. Fyrri hálfleikur var æði skrautlegur. Íslenska liðið skoraði ekki mark utan af velli fyrr en eftir átta mínútur og það mark kom frá hornamanninum, Arnóri Þór Gunnarssyni. Þökk sé Björgvini Páli í markinu var Arnór að jafna leikinn þar í 2-2. Björgvin hóf leikinn af sama krafti og gegn Spáni. Varði eins og berserkur og hélt liðinu hreinlega á floti. Smám saman small vörnin og liðin héldust í hendur lengi framan af fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn var ansi stirður og mörkin komu helst úr hornunum. Varnarleikur Slóvena var reyndar mjög öflugur og strákarnir hreinlega fundu ekki færin. Það var líka hiti í leikmönnum beggja liða og þurfti að stía mönnum í sundur. Þetta var alvöru bardagi. Eftir því sem leið á hálfleikinn náði Slóvenía tveggja marka forskoti þökk sé varnarleiknum. Slóvenar skoruðu svo flautumark í lok hálfleiksins og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 8-11. Í fyrsta sinn sem munurinn var þrjú mörk í leiknum. Það var ljóst að liðið þurfti að laga sóknarleikinn mikið fyrir seinni hálfleikinn en hornamennirnir skoruðu helming marka liðsins í fyrri hálfleik. Engin skytta komst í gang og þar áttu menn mikið inni. Þeir rembdust og rembdust við að komast í gegnum miðjuna en þar voru Slóvenar of þéttir fyrir. Varnarmenn liðsins stóðu bara og biðu eftir okkar mönnum. Of auðvelt. Íslenska liðið byrjaði síðari hálfleikinn af krafti. Skoraði tvö fyrstu mörk hálfleiksins og leikurinn galopinn. Strákarnir fóru loksins að fá hraðaupphlaup og með Bjarka Má Elísson í banastuði voru þeir búnir að jafna leikinn, 13-13, þegar aðeins fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Það var rosaleg barátta kominn í okkar menn sem lömdu hraustlega frá sér. Maður óttaðist um tíma að það myndi sjóða upp úr. Smám saman tók íslenska liðið yfir, einfaldlega sterkara og baráttuglaðara. Guðjón Valur kom Íslandi svo yfir, 17-16, af vítalínunni þegar 20 mínútur voru eftir. Slóvenar náðu aftur frumkvæðinu en íslenska liðið var farið að fá mörk frá skyttunum sínum og leikurinn í járnum. Því miður var markvarslan hjá okkur ekki sú sama og í fyrri hálfleik en það var allt annað að sjá sóknarleikinn þar sem Arnór Atlason stýrði málum af röggsemi. Á ögurstundu fór íslenska liðið að fá á sig ódýr mörk. Eftir hraða miðju og síðan er markverði var fórnað fyrir sóknarmann. Liðið var að fá brottvísanir og hélt ekki haus. Að gefast var samt ekki í myndinni hjá okkar mönnum. Er Slóvenarnir virtust ætla að stinga af náði íslenska liðið vopnum sínum á nýjan leik og klóraði sig inn í leikinn. Lokakaflinn var æsispennandi og áhorfendur í fullri höll í Metz öskruðu úr sér lungun. Því miður dugði hetjuleg barátta okkar manna ekki að þessu sinni.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt Sport Hörður undir feldinn Körfubolti Félögin vilja ekki knattspyrnukonur með börn Sport Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn Körfubolti Vignir Vatnar lagði Magnus Carlsen Sport Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Enski boltinn „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Íslenski boltinn Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Íslenski boltinn Fresta fleiri fótboltaleikjum vegna fráfalls Francis páfa Fótbolti Luka öflugur og Lakers jafnaði einvígið Körfubolti Fleiri fréttir „Svona er úrslitakeppnin“ ÍR í undanúrslit eftir sigur með minnsta mun Elvar Örn frábær þegar Melsungen marði sigur Uppgjörið: Afturelding - Valur 31-23 | Mosfellingar jöfnuðu metin með stæl Anton og Jónas dæma stórleikinn í Ungverjalandi Selfoss jafnaði metin Fram einum sigri frá úrslitum Höfðu betur eftir framlengdan leik Aldís Ásta og stöllur einum sigri frá úrslitunum Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Sjá meira