Má ekki dæma hjá ÍR vegna Instagram-færslu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. apríl 2019 14:07 Davíð Tómas að störfum. vísir/vilhelm
Davíð Tómas Tómasson, einn fremsti körfuboltadómari landsins, hefur ekkert dæmt í úrslitakeppni Domino's deildar karla síðan hann dæmdi oddaleik Tindastóls og Þór Þ. í 8-liða úrslitum 1. apríl síðastliðinn. Davíð Tómas dæmir fyrir KR og getur því eðli málsins samkvæmt ekki dæmt leiki í einvígi KR og Þórs Þ. Hann hefur ekki heldur dæmt leik í einvígi Stjörnunnar og ÍR. Raunar hefur Davíð Tómas ekki dæmt leik hjá ÍR á þessu ári. Í samtali við Vísi staðfesti Jón Bender, formaður dómaranefndar KKÍ, að Davíð Tómas dæmdi ekki leiki hjá ÍR eins og staðan væri núna. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Sýnar er ástæða þess færsla sem Davíð Tómas setti inn á Instagram 22. janúar síðastliðinn. Þar sést hann við hlið Matthíasar Orra Sigurðssonar, leikstjórnanda ÍR. Við myndina stendur „@ the office“. Það ku þó ekki vera upprunalegi textinn en þar vísaði hann í tengsl sín og Matthíasar Orra við Vesturbæ Reykjavíkur. Textinn þótti þess eðlis að ekki væri hægt að láta Davíð Tómas dæma fleiri leiki hjá ÍR.Færsla Davíð Tómasar á Instagram.skjáskot/instagramÞrátt fyrir að hafa ekki dæmt neitt í undanúrslitunum í úrslitakeppni Domino's deildar karla hefur Davíð Tómas ekki setið auðum höndum að undanförnu. Hann hefur dæmt tvo af fjórum leikjum í einvígi Keflavíkur og Stjörnunnar í undanúrslitum Domino's deildar kvenna, auk þess sem hann hefur dæmt í úrslitakeppni 1. deildar karla. ÍR getur tryggt sér sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitil karla með sigri á Stjörnunni í Seljaskóla í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:15 og verður í beinni textalýsingu á Vísi og sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Dominos-deild karla Mest lesið Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Íslenski boltinn „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Körfubolti Hvergerðingar í úrslit umspilsins Körfubolti KA Íslandsmeistari og tók alla titlana Sport Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar Íslenski boltinn Embla og Eva Björk í ham þegar Stjarnan komst yfir Handbolti Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Adam Ægir hefði alveg mátt gefa á mig“ Fótbolti Tryggvi Evrópumeistari með Bilbao Basket Körfubolti „Ég fer bara sáttur á koddann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Hvergerðingar í úrslit umspilsins „Þjöppuðum okkur saman og kláruðum þetta“ Jón Axel og félagar upp í spænsku úrvalsdeildina Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 73-76 | Njarðvíkur-sigur í spennutrylli Tryggvi Evrópumeistari með Bilbao Basket Fyrrum nýliði ársins í NBA reynir fyrir sér í hnefaleikum „Þessar stelpur kalla ekki allt ömmu sína“ „Vonandi nær maður að grípa í einn svona bikar“ Hörður undir feldinn Luka öflugur og Lakers jafnaði einvígið Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn „Við töpum boltanum í annarri hverri sókn“ Uppgjörið: Valur - Haukar 80-82 | Köstuðu sigrinum frá sér og klikkuðu á vítunum „LeBron þarf að fara í P. J. Washington hlutverkið“ Stólarnir afar öflugir þegar glittir í lokaúrslitin Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Nico Harrison: Áttaði mig ekki á hversu sterk ást þeirra á Luka var Falko áfram í Breiðholtinu Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð „Stemmningin í húsinu hjálpar“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Valur og KR unnu Scania Cup Warriors vann leik sem var eins og frá 1997 „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Sjá meira