Erlent
1 2 3 4 5 6 7 … 334 ›
Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Elon Musk, auðugasti maður heims og einn helsti ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, kallaði Peter Navarro, einn helsta ráðgjafa forsetans í tollamálum, „heimskari en múrsteinahrúgu“ í færslu á X Erlent 8.4.2025 22:12
Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Bandaríkin hafa lagt á 104 prósenta tollgjöld á innfluttar vörur frá Kína vegna mótvægisaðgerða stjórnvalda þar. Tollgjöldin taka gildi á miðnætti vestanhafs. Erlent 8.4.2025 19:51
Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Forseti Úkraínu segir að tveir kínverskir ríkisborgarar sem börðust í rússneska hernum hafi verið teknir höndum í austanverðri Úkraínu. Vísbendingar séu um að fleiri Kínverjar leynist í innrásarliðinu. Úkraínsk stjórnvöld krefji nú Kínverja svara um mennina. Erlent 8.4.2025 14:14
Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Volodómír Selenskí Úkraínuforseti hefur nú loks staðfest opinberlega að úkraínskir hermenn séu í Belgorod-héraði í Rússlandi. Erlent 8.4.2025 07:52
Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Yfirvöld í Kína ætla sér að „berjast til endaloka“ ætli Bandaríkin að halda áfram að stigmagna tollastríðið. Í yfirlýsingu frá viðskiptaráðuneyti Kína eru Bandaríkin sökuð um kúgun. Þar segir einnig að hótanir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að hækka enn frekar tolla gegn Kína séu mistök. Hærri tollar taka gildi á morgun víða um heim. Erlent 8.4.2025 06:34
Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Laurent Belgaprins, yngri bróðir Filippusar Belgakonungs, tapaði í dag dómsmáli gegn belgíska ríkinu, sem hann stefndi fyrir að hafna beiðni hans um að fá greiddar almannatryggingar. Erlent 7.4.2025 23:05
Mikilvægur fundur með Íran framundan Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, heimsótti Donald Trump, forseta Bandaríkjanna í Hvíta húsið. Þeir ræddu meðal annars tollgjöld forsetans, fund Bandaríkjamanna við Íran og átök á milli Ísrael og Gasa. Erlent 7.4.2025 21:58
Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Blaðamannafundi Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, og Benjamins Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sem halda átti í kvöld hefur verið aflýst. Þeir munu svara spurningum útvaldra blaða- og fréttamanna. Erlent 7.4.2025 18:52
Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Bráðaliði sem lifði af árás Ísraela á bílalest, þar sem fimmtán hjálparstarfsmenn voru drepnir, lýsir því hvernig hermennirnir létu hann afklæðast, skyrptu á hann, börðu og pyntuðu. Ísraelsher laug til um aðdraganda árásarinnar og gróf hina látnu í fjöldagröf. Erlent 6.4.2025 15:29
Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Ljósmynd sem prýðir WW3, nýjustu plötu Kanye West, var notuð í óleyfi. Ljósmyndin er af giftingu tveggja einkennisklæddra Ku Klu Klan-meðlima og var tekin fyrir umfjöllun aukablaðs Aftenposten árið 2015. Erlent 6.4.2025 14:38
Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Eins karlmanns er nú leitað í smábænum Weitefeld í kjölfar þess að tveir karlmenn og ein kona fundust látin. Lögregla hefur ráðlagt íbúum í Westerfald-héraði að halda sig heima og að taka ekki neinn ókunnugan upp í bíl sinn. Um 2.200 íbúar búa í Weitefeld. Erlent 6.4.2025 11:48
Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Ísraelsher viðurkennir að hermenn hans hafi gert mistök þegar þeir drápu fimmtán hjálparstarfsmenn í Gasa 23. mars. Ísraelsher hélt því fyrst fram að sjúkrabílalestin hefði ferðast „grunsamlega“ í myrkrinu án framljósa en myndefni af vettvangi afsannar það. Erlent 6.4.2025 10:16
Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Þúsundir mótmælenda sem eru óánægðir með það hvernig Trump stýrir Bandaríkjunum söfnuðust saman á um 1.200 skipulögðum mótmælum í 50 ríkjum Bandaríkjanna í gær. Auk þess voru skipulögð mótmæli í bæði Kanada og Mexíkó og í London, París og Berlín í Evrópu. Erlent 6.4.2025 08:40
Vill tollalaus viðskipti við Evrópu Elon Musk segir að ákjósanlegt væri að viðskipti milli Evrópu og Bandaríkjanna verði tollalaus og að hægt verði að gera einhverskonar fríverslunarsamning. Erlent 5.4.2025 22:20
„Þetta verður ekki auðvelt“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að tollahækkanir sem tóku gildi í dag séu efnahagsleg bylting, og Bandaríkjamenn muni sigra. „Þetta verður ekki auðvelt, en lokaniðurstaðan verður söguleg,“ segir hann. Erlent 5.4.2025 19:48
Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju Mykhailo Viktorovych Polyakov, bandarískur ferðamaður, var í vikunni handtekinn fyrir að fara upp á strönd eyjunnar North Sentinel í Indlandshafi. Það gerði hann til að hitta Sentinelese-ættbálkinn sem hefur búið þar um þúsundir ára án samskipta við annað fólk. Talið er að ættbálkurinn telji um 150 manns. Erlent 5.4.2025 13:19
„En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Breski grínistinn Russell Brand hefur svarað nauðgunarásökunum og segist hafa verið hálfviti, eiturlyfja- og kynlífsfíkill en aldrei nauðgari. Hann sé þakklátur að geta fengið að verja sig í réttarhöldum. Erlent 5.4.2025 10:54
Tollahækkanir Trump taka gildi Tollverðir í Bandaríkjunum byrjuðu í dag að innheimta tíu prósenta toll á allar vörur sem fluttar eru inn til Bandaríkjanna. Eftir viku munu tollarnir hækka á vörum sem fluttar eru inn frá 57 löndum utan Bandaríkjanna. Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í vikunni um víðtækar tollahækkanir á flest lönd heims. Erlent 5.4.2025 08:20
TikTok hólpið í bili Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur framlengt frest á fyrirhuguðu TikTok banni í Bandaríkjunum um 75 daga. Lögin áttu að taka gildi á morgun. Hann segir að samningaviðræður við yfirvöld í Kína hafi gengið vel og hann ætli áfram að vinna hörðum höndum að því að koma í veg fyrir bannið. Erlent 4.4.2025 19:49
Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær upp sex manns úr þjóðaröryggisráði Hvíta hússins. Það gerði hann eftir hálftímalangan fund með fjar-hægri aðgerðasinna og samsæringi sem taldi upp starfsmenn ráðsins sem hún taldi ekki nægilega hliðholla Trump. Erlent 4.4.2025 15:54
Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Breski grínistinn Russell Brand hefur verið ákærður fyrir tvær nauðganir og nokkur kynferðisbrot til viðbótar. Erlent 4.4.2025 14:11
Sendi Dönum tóninn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sendi Dönum tóninn í dag. Er það eftir að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, skammaðist yfir orðræðu Bandaríkjamanna um Grænland og sagði meðal annars að þeir gætu hreinlega ekki innlimað annað ríki. Erlent 4.4.2025 13:25
Saka Pútín um að draga lappirnar Yfirvöld í Bretlandi og Frakklandi sökuðu í morgun Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um að draga lappirnar í friðarviðræðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Bretar og Frakkar krefjast skjótra viðbragða frá Pútín vegna viðleitni Bandaríkjamanna til að koma á vopnahlé. Erlent 4.4.2025 09:56
Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Ísraelsher rannsakar nú dráp á hópi starfsmanna alþjóðlegra hjálparsamtaka á Gasaströndinni sem hafa vakið mikla reiði. Talsmaður hersins hafnar ásökunum um að mennirnir hafi verið teknir af lífi. Erlent 4.4.2025 08:52
Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Yoon Suk-yeol, forseti Suður-Kóreu, hefur verið leystur úr embætti af stjórnlagadómstól landsins. Dómstóllinn var einróma í ákvörðun sinni og taldi forsetann hafa brotið gegn stjórnarskránni með yfirlýsingu herlaga í desember. Erlent 4.4.2025 07:54
Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Bresk eftirlitstofnun rannsakar nú góðgerðarsamtökin Sentebale í kjölfar ásakanna formanns samtakanna á hendur Harrý Bretaprinsi sem kom að stofnun samtakanna. Erlent 3.4.2025 13:47
Grunaður um að verða mæðgum að bana Dánarorsök mæðgna sem fundust látnar í bænum Lindesnes á suðurströnd Noregs voru skotsár. Lögreglan í Noregi greindi frá þessu í dag. Erlent 3.4.2025 11:51
Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum Ríkisstjórn Donalds Trump ætlar að setja tolla á allan innflutning til Bandaríkjanna upp á tíu prósent en umfangsmeiri tollar hafa til viðbótar verið boðaðir á tugi ríkja. Tollarnir hafa verið kynntir sem „gagnkvæmir tollar“ vestanhafs og áttu þeir að hafa tekið mið af því hvaða tollum er beitt gegn vörum frá Bandaríkjunum. Erlent 3.4.2025 09:53
„Kokkurinn“ í Bandidos látinn Michael Rosenvold, forseti mótorhjólagengisins Bandidos í Evrópu, er látinn 57 ára að aldri. Rosenvold var danskur, og gekk undir nafninu „kokkurinn“. Erlent 3.4.2025 09:03
Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Ungverk stjórnvöld tilkynntu í dag að þau ætluðu að segja sig frá Alþjóðasamáladómstólnum á sama tíma og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, mætti í opinbera heimsókn til Búdapestar. Dómstóllinn, sem er sá eini sem fjallar um stríðsglæpi og þjóðarmorð, gaf út handtökuskipun á hendur Netanjahú vegna stríðsins á Gasa í nóvember. Erlent 3.4.2025 09:00