Venesúela er verðugur andstæðingur 19. júlí 2005 00:01
Knattspyrnusamband Íslands hefur samið um að leika tvo vináttulandsleiki í sumar og haust, gegn Venesúela hér heima þann 17. ágúst og gegn Pólverjum ytra í október. Framundan eru lokaleikirnir í undankeppni fyrir HM 2006 og þó svo að Ísland eigi enga möguleika á sæti þar verður engu að síður kappkostað við að ná góðum úrslitum og eru vináttulandsleikirnir hugsaðir sem undirbúningur fyrir þá leiki. Leikur Íslands og Venesúela verður sjöundi landsleikur Íslands gegn liði frá Mið- og Suður-Ameríku. Í þeim leikjum hefur Ísland einu sinni borið sigur úr býtum, gegn Bólivíu árið 1994 þar sem Þorvaldur Örlygsson skoraði sigurmark Íslands. Venesúela verður seint talið stórveldi í suður-amerískri knattspyrnu en liðið er í 9. og næstneðsta sæti undankeppni Suður-Ameríku fyrir heimsmeistarakeppnina. Liðið hefur þó náð athyglisverðum úrslitum, til dæmis unnið Úrúgvæ og Kólumbíu á útivelli og tapað naumlega fyrir Argentínu, 3--2, einnig á útivelli. Ísland leikur svo gegn Pólverjum ytra 7. október en Pólland trónir á toppi síns riðils sem stendur og mun væntanlega leika þýðingarmikinn leik gegn Englandi í lokaumferð riðlakeppninnar á sama tíma og Svíar taka á móti Íslendingum. "Við kappkostum við að fá landsleik hér heima í ágúst," segir Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ. "Við leituðum fyrir okkur í Evrópu en þá voru nærri allir uppteknir á þessum degi. En það verður gaman að geta boðið íslenskum áhorfendum upp á knattspyrnulandslið frá annarri heimsálfu." Geir segir að þó svo að staða Íslands í undankeppninni sé slæm skiptir hvert stig máli upp á framtíðina að gera og að vináttuleikirnir séu ekki síður mikilvægir. "Við erum að þróa okkar lið og reyna að bæta okkar leik. Þessir leikir eru líka hluti af því að vera í alþjóðlegu samstarfi. Knattspyrnan í Suður-Ameríku er sterk og Venesúela er sannarlega verðugur andstæðingur."
Íslenski boltinn Mest lesið Eygló verður síðasti Evrópumeistarinn í sögunni Sport Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United Fótbolti Fjögurra ára strákur gerði allt brjálað í höllinni Sport Hefði fengið 20 ára bann fyrir samskonar mál og Sinner Sport Max svaraði Marko fullum hálsi Formúla 1 „Maður er náttúrlega bara í pínu sjokki“ Sport „Hér er allt mögulegt“ Fótbolti Van Dijk fær 68 milljónir á viku Enski boltinn Heilinn fer að „borða“ sjálfan sig í maraþonhlaupi Sport Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Heldur áfram að spila komin fimm mánuði á leið Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Fjögurra ára strákur gerði allt brjálað í höllinni Heilinn fer að „borða“ sjálfan sig í maraþonhlaupi Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United Eygló verður síðasti Evrópumeistarinn í sögunni Max svaraði Marko fullum hálsi Hefði fengið 20 ára bann fyrir samskonar mál og Sinner Dagskráin í dag: Umspilið í NBA, 1. deild kvenna í körfubolta og margt fleira Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Hér er allt mögulegt“ Dramatík á Hlíðarenda Van Dijk fær 68 milljónir á viku Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram „Maður er náttúrlega bara í pínu sjokki“ Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Solanke skaut Tottenham í undanúrslit Chelsea í undanúrslit þrátt fyrir tap Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Albert og félagar í undanúrslit Slæmur skellur á móti nágrönnunum Móðir Eyglóar afhenti henni sögulegt EM-gull Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Eygló Fanndal Evrópumeistari Sönderjyske vann Íslendingaslaginn Rekinn út af eftir 36 sekúndur Sjá meira