SIRRÝ - Skjár 1Sirry er ótvíræð viðtalsdrottning landins. Hún stýrir þáttum sínum af mikillli ábyrgð og heldur ótrauð áfram að taka fyrir vandasöm málefni. Þátturinn minnir fólk á fjölbreytileika lífins. Umgjörð þáttarins hefur rótgróið yfirbragð en Sirrý eflir með hverju árinu. Vinnsla þáttanna og framsetning er til fyrirmyndar, þáttur eins og Sirrý þarf alltaf að vera til í íslensku sjónvarpssamfélagi.
FRAMLEIÐANDI: SKJÁR 1
STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI – Ragnheiður Thorsteinsson
Í BRENNIDEPLI – RÚVEinstaklega vandaður fréttaskýringaþáttur í anda 60 mínútna. Framleiðslugæði sem við viljum sjá meira af í íslensku sjónvarpi.
FRAMLEIÐANDI: RÚV
STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Páll Benediktsson/HaukurHauksson
SJÁLFSTÆTT FÖLK - Stöð 2Við fáum ekki leið á Sjálfstæðu Fólki. Jóni Ársæli og Steingrími sýna okkur innilegar nærmyndir af einstöku fólki í hverjum þættinum af fætur öðrum. Lengi megi þeir kappar halda áfram að gera gott sjónvarpsefni.
FRAMLEIÐANDI: Stöð 2 Steingrímur Jón Þórðarson
STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Jón Ársæll Þórðarson/Steingrímur Jón Þórðarson
EINU SINNI VAR ... - Stöð 2Eva María vinnur traust viðmælenda sinna og gefur okkur innsýn í liðna atburði sem mörg okkar hafa gleymt en eiga fullt erindi á borð til okkar í dag. Heillandi þættir.
FRAMLEIÐANDI: Storm ehf
STJORNANDI/LEIKSTJÓRI: Eva María Jónsdóttir
ÚTLÍNUR – RÚVÚtlínur eru vandaðir þættir um íslenska myndlist og myndlistarmenn.
Höfundur þáttanna nýta möguleika sjónvarpsins sem miðils á frumlegan, skapandi og skemmtilegan hátt og ná þannig nýstárlegan tökum á viðfangsefni sínu. Myndlist um myndlist í miðli sem hentar myndlistinni betur en aðrir og nær því sjálfur þegar best lætur að verða myndlist.
FRAMLEIÐANDI: RÚV
STJÓRNANDI/LEIKSTJÓRI: Þiðrik Ch. Emilsson/Gylfi Gíslason
Bíó og sjónvarp