Skall til jarðar skömmu eftir flugtak 11. júlí 2006 07:00 Skammt frá slysstaðnum Margir ættingjar og vinir þeirra sem fórust komu fljótt að slysstaðnum, sem var skammt frá flugvellinum. MYND/AP
Fjörutíu og fimm manns fórust með pakistanskri farþegaflugvél sem hrapaði til jarðar stuttu eftir flugtak frá flugvelli í borginni Multan í austurhluta Pakistans. Flugvélin, sem var af gerðinni Fokker F-27, brotlenti á hveitiakri skammt fyrir utan borgina. Ekki er vitað um orsök slyssins, en vélin hafði snúist í hringi í loftinu áður en hún skall til jarðar þar sem hún varð strax alelda. Fjögurra manna áhöfn vélarinnar fórst ásamt 41 farþega, pakistanskir að uppruna. Meðal farþeganna voru tveir dómarar við hæstarétt í Lahore og yfirmaður ríkisrekins háskóla í Multan. Ein flugfreyja, sem var lifandi þegar fólk kom að slysstaðnum, lést á sjúkrahúsi skömmu síðar. Vélin var í innanlandsflugi og var ferðinni heitið til Lahore, héraðshöfuðborgar í Punjab, sem er hérað í austanverðu Pakistan. „Það varð gríðarmikil sprenging eftir að vélin skall til jarðar,“ sagði Mohammed Nadeem, skartgripasali sem býr skammt frá slysstaðnum. Flugvélin hefur verið í notkun frá því árið 1979 og hefur nokkrum sinnum þurft að nauðlenda henni á síðustu árum. Ekkert benti til þess að hún hefði farist af völdum hermdarverka.
Erlent Mest lesið Frans páfi er látinn Erlent Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Innlent Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Erlent Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Innlent „Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands“ Innlent Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Erlent Hvernig er nýr páfi valinn? Erlent Fleiri fréttir Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Frans páfi er látinn Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Segja samfélagsmiðla valda auknu kvenhatri og rasisma í skólum Ísraelsher játar „fagleg mistök“ í máli hjálparstarfsmannanna Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Páfinn fordæmdi gyðingahatur og ástandið á Gasa Á fjórða hundrað stórskotaliðsárása á fyrstu nótt vopnahlés Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Saka hvor aðra um að berjast áfram þrátt fyrir vopnahlé Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður „Önnur tilraun Pútín til að leika sér að mannslífum“ Pútín tilkynnir um „páskavopnahlé“ Hæstiréttur frestar brottvísunum Trumps Lést í snjóflóði í Ölpunum Mannskæðasta árásin á Húta hingað til Bað fyrir friðsamlegum kosningum meðan hann hékk á krossinum Uggandi vegna atlögu að háskólum: „Við ætlum ekki að lifa í ótta“ Diddy ekki veittur aukafrestur Bresk systkini létust í kláfferjuslysinu Hamas hafnar tillögu Ísrael um vopnahlé Skoða hugsanlega breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard Sjá meira