Vill taka málið upp við yfirstjórn NATO 9. september 2006 12:47
Varaformaður Samfylkingarinnar vill taka það upp við yfirstjórn NATO að ekkert eftirlit sé með ómerktum flugvélum sem hugsanlega reyna að komast inn í íslenska lofthelgi. Eins og greint hefur verið frá á NFS er ekkert eftirlit hér á landi með merkjum sem berast frá fjórum rastjárstöðvum á Íslandi en kerfið var sett upp til að verjast ómerktum flugvélum sem hugsanlega reyna að laumast inn í íslenska lofthelgi. Bandaríski herinn sá um eftirlitið en hætti því fyrir nokkrum vikum og hefur ekki áhuga á að halda eftirlitinu áfram, samkvæmt heimildum NFS. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra vill ekki staðfesta að ekkert eftirlit sé með ómerktum flugvélum, en hefur þó ekki neitað því. Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, sem jafnframt er varamaður í utanríkismálanefnd Alþingis, segir málið mjög alvarlegt. Hann vill taka málið upp við yfirstjórn NATO því málefni lofthelgi Íslands sé ekki eingöngu mál Íslendinga heldur einnig annarra NATO-ríkja. Ágúst segir að Samfylkingin hafi lengi talað fyrir því að NATO þurfi að koma að varnarviðræðunum með beinum hætti, en ríkisstjórnin hafi þráast við. Niðurstaðan sé sú að viðræðurnar virðast ganga illa, auk þess sem stjórnarandstaðan fái takmarkaðar upplýsingar um það hvernig staðan sé.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Innlent Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga Erlent Ráðist að fólki við Breiðholtsskóla um hábjartan dag Innlent Benedikt telur undanbrögð útvarpsstjóra grátleg Innlent Engin hópnauðgun um páskana á borði lögreglu Innlent Réðust á tvo menn á göngu Innlent Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Erlent Saka Ingu um metnaðarleysi eftir skipun flokksmanna í stjórn Innlent Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Innlent Vill þyngri refsingar fyrir alvarleg kynferðisbrot Innlent Fleiri fréttir Allt á áætlun en spánarfarar beðnir um að fylgjast með Björn tekur við af Helga Ráðist að fólki við Breiðholtsskóla um hábjartan dag Um níutíu hælisleitendur setið í fangesli síðustu mánuði fyrir brottvísun Kryfja mál Ásthildar Lóu fyrir opnum tjöldum Saka Ingu um metnaðarleysi eftir skipun flokksmanna í stjórn Engin hópnauðgun um páskana á borði lögreglu Nýtt met slegið í fjölda giftinga Benedikt telur undanbrögð útvarpsstjóra grátleg Vill þyngri refsingar fyrir alvarleg kynferðisbrot Tekur við sem framkvæmdastjóri Bergsins Headspace Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Alþingi kemur saman á ný eftir páskafrí Réðust á tvo menn á göngu Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Hljóðheimur sumarsins í hættu: Mikil fækkun lóu og spóa Höllu dreymir um að fá gróðurhús á Bessastaði Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Hælisleitendur í einangrun: Versta úrræðið sem hægt er að beita Geðheilbrigði í fangelsum og fækkun lóu og spóa Áætlun Trump gangi engan veginn upp Vill selja bílastæðahús borgarinnar og Iðnó Ráðamenn hneykslast á Exit-auglýsingu SFS Mikill viðsnúningur hjá Árborg í fjármálum sveitarfélagsins Amman handleggsbrotin eftir hundsbit með barnabarnið í göngutúr Kvenkyns ökumönnum fækkað: Áhyggjuefni ef almenningur treystir ekki leigubílstjórum Áhyggjur leigubílstjóra og kólnandi hagkerfi Óvissa um heimshagkerfið og úrsögn Sólveigar Önnu „Ég vildi óska að fólk gæti séð drenginn minn eins og hann er“ Töldu Akureyringa ekki reka alvöruflugfélag Sjá meira