Vinsælt að eiga sumarhús á Spáni 15. nóvember 2006 13:00
Hundruð ef ekki þúsundir Íslendinga eiga nú fasteignir á Spáni. Þeim hefur fjölgað verulega síðustu tvö árin. Á sama tíma fara æ fleiri í hefðbundnar pakkaferðir. Það vakti athygli að í fasteignablaði Fréttablaðsins í fyrradag mátti sjá þrjár heilsíðuauglýsingar um fasteignir á Spáni. Fasteignasalar sem NFS ræddi við voru sammála að áhugi Íslendinga á íbúða- og húsakaupum við Miðjarðarhafið hefði vaxið verulega á síðustu árum. Fjögur eða fimm fyrirtæki eru að selja húsnæði á Spáni og við Miðjarðarhafið til Íslendinga. Eitt af þeim elstu er Gloria casa sem hefur verið starfandi hér í sex ár og er búið að selja samtals á sjötta hundrað eigna. Töluvert mun vera um að fjárfestar kaupi allt upp í þrjátíu íbúðir á byggingarstigi sem þeir leigja síðan út eða selja aftur en stærsti kaupendahópurinn er fólk sem er komið yfir sextugt. Þá er nokkuð um að stórfjölskyldur taki sig saman og aðeins að aukast að starfsmannafélög fyrirtækja kaupi húsnæði. Á sjötta hundrað eigna er skráð í Félag húseigenda á Spáni. Þrátt fyrir það að þúsundir Íslendinga eiga nú sumarhús við Miðjarðarhafið hefur ekki orðið samdráttur í þessum hefðbundnu pakkaferðum, þvert á móti hefur þeim fjölgað sem fara í pakkaferðir.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldar loga í LA og neyðarástandi lýst yfir Erlent Ibrahim hafi horfið sjónum bílstjórans í fáeinar sekúndur Innlent Íbúar hafi óttast að svona gæti farið Innlent Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins Innlent Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Innlent Fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir bruna á Sævarhöfða Innlent Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Innlent Belgar varaðir við því að borða jólatrén Erlent Ætlar að hitta kónginn í dag Erlent Kettlingur í Reykjavík greindur með H5N5 Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Útför Egils Þórs Jónssonar Telur stjórnsýsluúttekt litlu breyta fyrir íbúa og íhugar að flytja Ummælin um Grænland risastórt mál sem ætti að taka alvarlega Efla vöktun við Ljósufjöll vegna jarðhræringa Gagnrýna aðbúnað í hjólhýsabyggðinni á Höfðanum Ibrahim hafi horfið sjónum bílstjórans í fáeinar sekúndur Íbúar hafi óttast að svona gæti farið Kettlingur í Reykjavík greindur með H5N5 Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins Skjálftar við Grjótárvatn og Bárðarbungu Fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir bruna á Sævarhöfða Tundurduflið dregið út á Eyjafjörð og eytt í birtingu Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Framtíð Grænlands ráðist í Grænlandi Götulokanir á Akureyri vegna tilfærslu sprengjunnar Hafi þurft að þola ómannúðlega meðferð sem dró hann til dauða Stefnir ríkinu vegna plastbarkamálsins „Hann kom víða við og snerti marga“ Fimm sækjast eftir embætti Landlæknis „Þetta er sannarlega mikill heiður“ Innri endurskoðun tekur ferlíkið við Álfabakka fyrir Bjarni misst stuðning úr sínum kjarnahópi Krefji Eddu um margfalt hærri upphæð en eðlilegt sé Guðmundur Ari þingflokksformaður og Dagur kemst ekki á blað Togari kom með sprengju til hafnar á Akureyri Formannsslagur í uppsiglingu eftir brotthvarf Bjarna Fjögur hundruð milljónir fara „dönsku leiðina“ í Úkraínu Hyggst leggja til rammaáætlun á vorþinginu Segir brotthvarf Bjarna breyta pólitíska landslaginu Sjá meira