Mayweather eldri þjálfar Ricky Hatton 3. september 2008 14:48 Floyd Mayweather eldri
Floyd Mayweather eldri, sem áður þjálfaði nafna sinn og son Mayweather yngri, verður þjálfari breska hnefaleikarans Ricky Hatton fyrir næsta bardaga hans gegn Paulie Malinaggi í Las Vegas í nóvember. Mayweather eldri er almennt álitinn einn besti þjálfarinn í bransanum þrátt fyrir að vera vægast sagt sérlundaður. Þetta verður í fyrsta sinn sem Hatton berst án fyrrum þjálfara síns Billy Graham, sem lét af störfum af heilsufarsástæðum í síðasta mánuði. Mayweather eldri hefur staðið í horninu hjá ekki ómerkari mönnum en hinum ósigraða syni sínum og Oscar de la Hoya og er því enginn nýgræðingur í bransanum. Hatton er mjög spenntur fyrir nýja þjálfaranum sínum. "Ég er orðinn það gamall að ég get nú líklega ekki breytt stíl mínum mjög mikið. Ég er hinsvegar búinn að tala við mitt fólk og það er á einu máli um að reynsla Mayweather muni nýtast mér vel. Bardaginn við Malinaggi er algjör úrslitabardagi fyrir mig og ég verð að eiga mínar bestu æfingabúðir til þessa," sagði Hatton ánægður. Hann hefur aðeins tapað einum bardaga á ferlinum og það var einmitt gegn Floyd Mayweather yngri í Las Vegas í fyrra.
Box Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Dagskráin í dag: Formúla 1 og NBA á Páskasunnudegi Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Sjá meira