Nauta Osso buco
1 kg osso buco í sneiðum
50 gr smjör
2 msk hveiti
Pipar nýmalaður
Salt
1 laukur stór saxaður
2 sellirístönglar saxaðir smátt
2 gulrætur skornar í litla bita
250 ml. hvítvín
500 g tómatar vel þroskaðir
2 msk. Tómatþykkni
Sítrónubörkur tvær ræmur
1 lárviðarlauf
Kjötið er kryddað með salti og pipar, velt upp úr kryffuðu hveiti og brúnað vel á heitri pönnu.
Kjötið er síðan sett í þykkbotna pott. Grænmetið er steikt á pönnu þar til það er rétt að fara að taka lit.
100 ml af hvítvíni hellt yfir,látið sjóða næstum alveg niður og botninn á pönnunni skafinn með sleif á meðan.
Grænmetinu er þá hellt yfir kjötið,og síðan tómötum, tómatþykkni, sítrónuberki ,lárviðarlaufi og afgangnum af hvitvíninu.
Hitað að suðu og lok sett á pottinn og látið malla við mjög vægan hita í um 2 klst. og hrært öðru hverju og vatni bætt í ef þarf en sósan á að vera þykk og bragðmikil.
Að lokum er sósan smökkuð til og kjötið borið fram í sósunni.