Matur

Heilsteiktur nautavöðvi "Bernaise"

Hitið olíu á pönnu og brúnið vöðvann, kryddið með salti og pipar. Setjið á ofngrind og í ofn á 100 °c í 60 mín eða þar til steikarmælir sýnir 58° í kjarna. Takið steikina úr ofninum og látið standa á grindinni undir þurru stykki í 15 mín til að láta safann setjast í steikinni.

Sósan

Bræðið smjörið í potti og þeytið eggjarauðurnar estragonið, bernaise essence, vatnið, saltið, piparinn og kjötkraftinn í stálskál yfir hita, uns þykk og þétt froða hefur myndast.

Passið að ofnhita ekki eggjablönduna. Blandan má ekki verða heit aðeins volg. Sömuleiðis má smjörið ekki vera of heitt, heldur aðeins volgt. Blandið smjörinu út í hægt og rólega, fyrst 1 msk í einu og síðan í mjórri bunu. Þeytið stöðugt í á meðan smjörinu er bætt við. Endið á að bragðbæta sósuna með smá kjötkrafti og salti og pipar ef þurfa þykir.

Berið þennan rétt fram með smjörsteiktum sveppum,bökuðum tómat og bökuðum kartöflum.

1 kg heill nautavöðvi, fillet, rib eye eða lund.
olía til steikingar
salt og pipar
400 g smjör
4 eggjarauður
1 msk þurrkað estragon
1 msk bernaise essence
1 msk vatn

smá kjötkraftur

Uppskrift af Nóatún.is








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.