Dauðadæmdum kastað fyrir björg Óli Tynes skrifar 7. janúar 2008 11:32 Yfirleitt eru dauðadæmdir hengdir í Íran.
Hæstiréttur Írans hefur staðfest að tveir dauðadæmdir menn skuli teknir af lífi með því að kasta þeim fyrir björg. Þeir voru dæmdir fyrir að nauðga öðrum karlmönnum. Aftökur með þessum hætti munu vera sjaldgæfar, en samkynhneigð ein og sér er dauðasök í Íran. Íransk-norskur mannréttindafrömuður segir í viðtali við Aftenposten að þessi dómur sýni hverskonar stjórnarfar ríki í landinu. Þetta sé ekki dómur sem hafi verið felldur í einhverjum afskekktum afdal, heldur dómur sem sé staðfestur af hæstarétti Írans. Yfirleitt er fólk í Íran tekið af lífi með hengingu. Í síðustu viku voru til dæmis þrettán manns hengdir. Þar á meðal var 27 ára gömul tveggja barna móðir sem var dæmd til dauða fyrir að verða manni sínum að bana eftir að hún kom að honum í rúminu með annarri konu. Hann gaf þá skýringu á framhjáhaldinu að hún sjálf væri of mikið notuð eftir að hafa alið honum tvö börn. Við það missti hún stjórn á sér.
Erlent Mest lesið Frans páfi er látinn Erlent Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Innlent Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Erlent Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Innlent Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Erlent Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Innlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Fleiri fréttir Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Frans páfi er látinn Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Segja samfélagsmiðla valda auknu kvenhatri og rasisma í skólum Ísraelsher játar „fagleg mistök“ í máli hjálparstarfsmannanna Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Páfinn fordæmdi gyðingahatur og ástandið á Gasa Á fjórða hundrað stórskotaliðsárása á fyrstu nótt vopnahlés Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Saka hvor aðra um að berjast áfram þrátt fyrir vopnahlé Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður „Önnur tilraun Pútín til að leika sér að mannslífum“ Pútín tilkynnir um „páskavopnahlé“ Hæstiréttur frestar brottvísunum Trumps Lést í snjóflóði í Ölpunum Mannskæðasta árásin á Húta hingað til Bað fyrir friðsamlegum kosningum meðan hann hékk á krossinum Uggandi vegna atlögu að háskólum: „Við ætlum ekki að lifa í ótta“ Diddy ekki veittur aukafrestur Bresk systkini létust í kláfferjuslysinu Hamas hafnar tillögu Ísrael um vopnahlé Skoða hugsanlega breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard „Þetta er pólitískt val og meðvituð árás á getu fólks til að lifa af“ Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Sjá meira