Fóður og fjör Við pollinn 16. mars 2009 15:03 Starfsfólk og eigendur veitingastaðarins Við Pollinn. Veitingastaðurinn Við Pollinn á Ísafirði tekur þátt í hátíðinni „Fóður og fjör“ sem haldin verður víðs vegar um land um helgina. Halldór Karl Valsson, annar eigenda veitingastaðarins, segir veitingastaðinn ætla að vera með vestfirska framleiðslu á boðstólum. „Við verðum bara með hráefni sem kemur af svæðinu. Kokkarnir á veitingastaðnum sjá alfarið um matreiðsluna og boðið er upp á lifandi tónlist fyrir matargesti,“ segir Halldór Karl. Er þetta annað árið í röð sem hátíðin er haldin á Ísafirði en á undanförnum árum hefur matarhátíðin Food & fun í Reykjavík áunnið sér veglegan sess í borgarlífinu og nú vilja veitingastaðir úti á landi bjóða upp á spennandi matseðil í stórbrotinni íslenskri náttúru á þessum tíma árs. Veitingastaðurinn hefur einnig opnað nýja heimasíðu þar sem allar helstu upplýsingar um staðinn eru að finna ásamt matseðlum, veisluþjónustu og þjónustu vegna funda eða ráðstefna. Halldór Karl segir síðuna hugsaða til að koma til móts við viðskiptavininn og auðvelda honum aðgengi að grunnupplýsingum um veitingastaðinn. [email protected] Food and Fun Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent
Food and Fun Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent