Fyrirhugaður bardagi Haye og Valuev af dagskrá? Ómar Þorgeirsson skrifar 26. ágúst 2009 10:30 David Haye. Nordic photos/AFP
Það ætlar að ganga erfiðlega fyrir Bretann David Haye, fyrrum heimsmeistara í cruiserweight-þyngdarflokknum, að næla sér í beltabardaga eftir að hann færði sig upp í þungavigtarflokk. Haye átti upphaflega að mæta Vitali Klitschko í bardaga um WBC-þungavigtartitilinn 20. júní síðast liðinn en svo var hætt við hann og bardagi við yngri bróðurinn Wladimir Klitschko um IBF og WBO-þungavigtartitlana settur á í staðinn en það gekk ekki heldur upp. Nú er útlit fyrir að fyrirhugaður bardagi Haye við Nikolai Valuev um WBA-þungavigtartitilinn sem fara átti fram í byrjun nóvember sé einnig að fara í súginn. Þannig er mál með vexti að John Ruiz er í raun réttmætur áskorandi til þess að mæta hinum 2,13 metra háa Valuev og þó svo að Haye og Valuev hafi verið búnir að ná samkomulagi um að mætast þá hafði WBA-hnefaleikasambandið ekki enn gefið grænt ljós á bardagann. Ruiz er ekki tilbúinn að stíga til hliðar og hleypa Haye fram fyrir sig og hótar að sækja málið fyrir rétti til þess að verja stöðu sína og rétt sinn á að mæta Valuev. Útlit er því fyrir að Haye þurfi að bíða enn lengur en Klitschko bræðurnir eru sagðir óviljugir til þess að gefa Haye annað tækifæri eftir að hann bakkaði út úr bardögum við þá vegna meiðsla og ósættis í samningaviðræðum.
Box Mest lesið „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Íslenski boltinn Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Enski boltinn Saka ekki alvarlega meiddur Enski boltinn Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Fótbolti Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Fleiri fréttir Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Sjá meira