Söngkonan Katy Perry heldur áfram að koma fólki á óvart með skrýtnu fatavali sínu.
Tískusýningar undirfataframleiðandans Victoria's Secret hafa ávallt vakið mikla athygli enda ansi litríkar og glaðlegar. Gestir á sýningunni á dögunum gengu ekki rauða dregilinn heldur þann bleika og hér má sjá nokkrar myndir af því sem gestirnir klæddust á sýningunni.
Systurnar Nicky og Paris Hilton létu sig að sjálfsögðu ekki vanta á sýninguna.
Gamli töffarinn Debbie Harry var á meðal gesta tískusýningarinnar.
Fyrirsætan og Transformers-leikkonan Rosie Huntington hefur slegið í gegn hjá strákunum undanfarið.
Vin og vinkona. Hasarleikarinn Vin Diesel mætti kátur ásamt kærustu sinni á sýninguna.
Ofurfyrirsætan Alessandra Ambrosio sýndi línurnar í þessum þrönga, látlausa kjól.