Þessar Súkkulaðispesíur sendi Guðný Margrét Eyjólfsdóttir, 9 ára.
Súkkulaðispesíur Guðnýjar Margrétar
75 g hveiti
25 g spelt
100 g dökkar súkkulaðispænir
25 g dökkur púðursykur
50 g strásykur
1/4 tsk vanilludropar
100 g smjör
ljósir súkkulaðidropar
Aðferð:
1) blanda saman þurrefnum
2) mylja og hnoða kalt smjör og súkulaðispænir saman við með höndunum
3) bæta við vanilludropum, hnoða vel saman
4) búið til lengju, ca 3 sm í þvermál, vefjið inn í plastfilmu og kælið í ca 1 klt.
5) skerið lengjuna niður í frekar þunnar kökur, raðið á bökunarplötu og bakið í 10-15 mín í 200° heitum ofni.
6) um leið og kökurnar koma út úr ofninum er settur einn súkkulaðidropi ofan á hverja köku.
Jól