Besti flokkurinn fundar um næstu skref 30. maí 2010 14:31 Jón Gnarr ásamt öðrum frambjóðendum og borgarfulltrúum Besta flokksins funda í þessum töluðu orðum.
Besti flokkurinn er að fara að funda um næstu skref í borgarstjórn en flokkurinn stendur með pálmann í höndunum eða sex borgarfulltrúa kjörna. Í Silfri Egils í hádeginu sagði Jón Gnarr, oddviti flokksins, að hann þyrfti að tala við sína flokksmenn áður en næstu skref yrðu ákveðin en sá fundur hófst fyrir stundu. Á Facebook-síðu flokksins segir: „Leynifundur BF að hefjast." Þegar haft var samband við Heiðu Kristínu Helgadóttur, staðfesti hún að fundurinn væri hafinn. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði einnig í Silfrinu að hennar flokkur myndi virða niðurstöður kjósenda og ræða fyrst við Besta flokkinn varðandi hugsanlegt meirihlutasamstarf. Það er sá möguleiki í stöðunni að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndi meirihluta en Hanna segir að það samrýmist ekki vilja kjósenda að byrja á því að semja við Samfylkinguna og skilja Besta flokkinn eftir. Þá hefur Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagst ekki hugnast samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfur hefur Jón Gnarr margsagt að hann vilji vinna með öllum. Ekki er ljóst hvenær fundi Besta flokksins lýkur en þetta er fyrsti fundurinn sem þau halda eftir kosningar.
Kosningar 2010 Mest lesið Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Innlent Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Innlent Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Innlent Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Erlent Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Erlent Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Innlent Maðurinn er laus úr haldi Innlent Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Innlent Fleiri fréttir Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að fara með rangt mál um dvalarleyfi Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Maðurinn er laus úr haldi „Við megum mótmæla því að verið sé að drepa saklaust fólk“ Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Falla frá gjaldskrárhækkunum og árásir á tímum vopnahlés Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Ferill fyrrum forsætisráðherra og verðlaunaður sagnfræðingur í Sprengisandi Rólegheitaveður á páskadag Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu Mótmæla brottvísun Oscars Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Engin tengsl milli þolenda og gerenda Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna Bora tilraunaholu til að framleiða heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Koma strandaglópunum heim í kvöld Áhyggjuefni að brotaþolar treysti ekki dómstólum Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Fólskuleg líkamsárás og strandaglópar í suðri „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Sjá meira