Nanna Rögnvaldsdóttir matgæðingur sýnir hér uppskrift að tvílitum súkkulaðibúðing fyrir átta til tíu manns.
Hvíti búðingurinn:
2 matarlímsblöð
100 g hvítt súkkulaði
250 ml rjómi
3 egg
100 g sykur
½ tsk. vanilluessens
Dökki búðingurinn
2 matarlímsblöð
125 g dökkt súkkulaði
250 ml rjómi
3 egg
100 g sykur
örlítið salt
Hvíti búðingurinn: Leggðu matarlímið í bleyti í köldu vatni. Brjóttu hvíta súkkulaðið í bita og settu það í pott með 100 ml af rjóma. Hitaðu gætilega, hrærðu stöðugt og taktu pottinn af hitanum um leið og súkkulaðið er bráðið. Kreistu vatnið af matarlímsblöðum og hrærðu saman við. Þeyttu egg, sykur og vanilluessens mjög vel og hrærðu súkkulaðiblöndunni saman við. Þeyttu rjómann og blandaðu honum gætilega saman við. Láttu búðinginn standa þar til hann er aðeins að byrja að þykkna.
Dökki búðingurinn: Farðu alveg eins að og við hvíta búðinginn.

Hafðu tilbúna skál og skiptu henni sundur með einhvers konar skilrúmi - tilklipptu spjaldi úr stífum pappa ef þú vilt hafa skörp litaskil en ef þú vilt láta búðingana blandast má nota hvað sem er (ég notaði gluggaumslag frá bankanum mínum).
Helltu hvorri búðingsblöndu sínum megin við skilrúmið og gættu þess að búðingurinn nái jafnhátt upp báðum megin. Notaðu svo prjón til að teikna mynstur á yfirborðið.
Hindberjasósa (má sleppa)
125 g hindber, frosin
2 kúfaðar msk. hindberjasulta
1 msk. ljóst síróp
Allt sett í pott og hitað. Hrærið öðru hverju þar til berin eru farin að maukast. Þá er sósan látin kólna.