Swords of Chaos er fjögurra manna band, skipað þeim Úlfi Einarssyni söngvara, Alberti Finnbogasyni gítarleikara, Ragnari Hrólfssyni trommuleikara og Úlfi Hanssyni bassaleikara. Þeir spila hratt og hart rokk.
Flest lögin á þessari fyrstu plötu þeirra hljóma við fyrstu hlustun eins og tónlist ótal annarra harðkjarna metalsveita. Þegar maður hlustar betur fer maður hins vegar að taka eftir smáatriðunum í sándinu og útsetningunum og lagasmíðarnar sem sumar virka kaótískar í byrjun síast inn.
Það er góður kraftur í þessu bandi. Hljóðfæraleikararnir gefa ekkert eftir og Úlfur söngvari er í meira lagi efnilegur. Nokkur lög plötunnar skera sig úr og breyta heildaryfirbragði hennar.
Alexis Mardas sem er unnið í samstarfi við Kiru Kiru er eins og hljóðlandslag, Each Thousand Years but a Day hefst á lúðrakafla og lokalagið, Northern Crater, leysist upp í miðri keyrslunni og tekur góðan tíma í að fjara út með tilþrifum.
Þessi plata virkar best spiluð í gegn í heild sinni. Ekki er hægt að sleppa því að minnast á umslagið, sem er hannað af Söru Riel og sem er sérstaklega flott. Það má reyndar alveg hrósa Kima fyrir metnað og framsækni í umslagagerð.
Á heildina litið er þetta ágæt rokkplata. Ef þeir félagar bæta aðeins í undarlegheitin gæti næsta plata orðið meistaraverk!
Niðurstaða: Kraftmikil og á köflum stórskemmtileg rokkplata.