Uppskriftina að þessum girnilegu marsipan-nougat smákökum sendi Karen Þórsteinsdóttir okkur.
Marsipan-Nougat smákökur:
1/2 kg. marsipan
3 eggjahvítur (óþeyttar)
125 gr. flórsykur
100 gr. nougat
Marsipan, eggjahvítur og flórsykur hrært í potti við vægan hita( bara svo marsipanið verði mjúkt rúmlega líkamshiti)
Hnoðað með höndunum.
Síðan er massinn settur í sprautupoka og sprautaðir litlir hringir á bökunarplötu sem klædd er bökunarpappír. Lítill biti af nougati settur í miðju hringsins og síðan sprautaður marsipankross yfir nougatið.
Bakað við 225° C í 5-7 mínútur.