Það getur margt óvart gerst í veiðinni. Það fékk Atli Bergmann að reyna um helgina er hann kastaði á uppítökur í efsta veiðistað Elliðaánna.
Atli átti síðari helming föstudagsins síðastliðins. Veiðarnar í vor hafa gengið vel, og ekki síst hjá Atla sem landaði fjórtán silungum frá einu og upp í þrjú pund. Átta af þeim voru hefðbundnir urriðar veiddir á Krókinn og ýmsa kúluhausa efst í Höfuðhylnum og í hávaðanum niður undan efstu brúnni.
En það sem gerðist síðasta klukkutímann var nokkuð merkilegt. Þá tók Atli eftir vakandi silungum ofan við hólmann sem myndar Hólmakvísl, neðst í Höfuðhylnum. Setti hann undir Ölmu Rún og landaði skömmu síðar fínni bleikju. Þetta endurtók hann ítrekað og endaði kvöldið á því að taka fimm bleikjur og einn sjóbirting!
Sannarlega athyglisverð veiði þessa kvöldstund, því til samanburðar var heildar bleikjuveiði í Elliðaánum síðasta sumar hvorki meira né minna en ein bleikja!
Birt með góðfúslegu leyfi SVFR
Bleikjur í Elliðaánum
