Síðari áfangi í hreinsun Elliðaánna verður unninn nk. fimmtudag, 16. júní, kl. 17:00. Félagsmenn eru hvattir til að mæta við veiðihúsið þann dag og taka þátt í þessu þakkláta verkefni.
Fyrri hluti átaksins var unninn í síðustu viku og tókst vel til og var heilmikið rusl hirt úr ánum og kenndi þar margra grasa að venju. Á fimmtudaginn verður verkefnið klárað og vonumst við til þess að sjá sem flesta leggja djarfa hönd á plóg.
Elliðaárnar verða síðan opnaðar mánudaginn 20. júní nk. og vonum við að vel takist til. Eitt þeirra atriða sem vert er að hafa í huga er ásýnt ánna og nánasta aumhverfis sem er á ábyrgð okkar.
Við hlökkum til að sjá sem flesta félagsmenn og velunnara þess við veiðihúsið kl 17:00 Á FIMMTUDAGINN 16. JÚNÍ
Kveðja frá árnefnd Elliðaánna.
Hreinsun Elliðaánna heldur áfram
