Á vefnum hjá SVAK sáum við þessa frétt:
Við fengum smáskeyti frá Gumma og Daníel sem skruppu í Hörgánna í vikunni:
"Ég og Daníél skruppum sunnudagsmorgun á svæði 1 í Hörgá, mjög gott veður framan af en um hádegi var farið að versna veðrið svo við hættum þá.
Við fengum 8 fiska, þar af 3 sjóbirtinga. Fiskurinn var nokkuð vænn, stærsti sjóbirtingurinn 2,1kg, svo stærsta bleikjan var 1,9 kg."
Hörgáin er klárlega ein af fallegri ánum á Eyjafjarðarsvæðinu og það verður gaman að fylgjast með henni í sumar.
Birt með góðfúslegu leyfi SVAK
Gott skot í Hörgá
