Allsherjar- og menntamálanefnd hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis að 24 einstaklingar skuli hljóta íslenskan ríkisborgararétt. Á meðal þeirra sem lagt er til að fái ríkisborgararétt er Siim Vitsut, rúmlega tveggja ára gamall drengur fæddur í Eistlandi.
Hann er sonur Hannesar Þórs Helgasonar sem féll fyrir morðingjahendi í Hafnarfirði í fyrra.
Þá er einnig lagt til að Mehdi Kavyanpoor, fæddur árið 1958 í Íran, fái ríkisborgararétt en hann komst í fréttirnar fyrr á árinu þegar hann hótaði að kveikja í sér í höfuðstöðvum Rauða kross Íslands. Þá var hann orðinn úrkula vonar um að fá að dvelja hér á landi til frambúðar en hann kom hingað upphaflega sem flóttamaður.
Nefndinni bárust 42 umsóknir um ríkisborgararétt nú á haustþinginu og leggur nefndin til að að tuttugu og fjórum verði veittur sá réttur að þessu sinni.
Ríkisborgararétt skulu öðlast:
1. Disley Torralba Ramos, f. 1986 á Kúbu.
2. Dóra Rögnvaldsdóttir, f. 1960 á Íslandi.
3. Maria del Carmen Helena Jimenez Pacifico, f. 1989 í Kólumbíu.
4. Sandra Aguilar Chang, f. 1970 í Perú.
5. Sif Ellen Bohne, f. 1965 á Íslandi.
6. Siim Vitsut, f. 2009 í Eistlandi.
7. Waleska Tinoco Giraldo, f. 1989 í Venesúela.
8. Jorge Eduardo Montalvo Morales, f. 1981 í Kólumbíu.
9. Konstantin Stroginov, f. 1984 í Úkraínu.
10. Lucio Atanasio Ballester, f. 1972 í Argentínu.
11. Maria Mehriban Gunakar Franken, f. 1966 í Tyrklandi.
12. Somayeh Ershadi, f. 1981 í Íran.
13. Carla Sofia de Jesus Vieira Almeida, f. 1980 í Portúgal.
14. Marcela Quental da Silva, f. 1966 í Angóla.
15. Hong Thu Thi Tran, f. 1959 í Víetnam.
16. Diley Ojeda Linares, f. 1967 á Kúbu.
17. A Kaewkong, f. 1982 í Taílandi.
18. Arkadiusz Patryk Szacon, f. 1982 í Póllandi.
19. Ferid Tabaku, f. 1980 í Kósóvó.
20. Jessica Sól Hausner Helgudóttir, f. 1984 í Þýskalandi.
21. Nattaphong Phromprasith, f. 1983 í Taílandi.
22. Phetchada Khongchumchuen, f. 1960 í Taílandi.
23. Stanko Dorovic, f. 1982 í Serbíu.
24. Mehdi Kavyanpoor, f. 1958 í Íran.