Viðskiptavinir borguðu brúsann 16. september 2011 04:30 Urðarbrunnur Enn í dag hefur engin bygging risið á lóðinni.
Slitastjórn VBS Fjárfestingarbanka hefur sent mál tengd sölu á veðskuldabréfum frá einu sviði bankans til annars til Fjármálaeftirlitsins (FME) og embættis sérstaks saksóknara. Ekki er útilokað að fleiri mál verði send þangað. Um er að ræða sölu á veðskuldabréfum tengdum fasteignaverkefnum sem bankinn fjármagnaði, og átti í sumum tilvikum hlut í, til eignastýringarsviðs VBS. Bréfin voru gefin út af byggingarverktökum sem voru viðskiptavinir Framkvæmdafjármögnunar VBS. Kaupin voru gerð án samráðs við viðskiptavini. Vísbendingar eru um að fjármögnunarsvið VBS hafi lánað milljarða út á mat á hugsanlegu söluandvirði fyrirhugaðra fasteigna, aðallega á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og á Reykjanesi, sem aldrei risu. VBS afskrifaði sjö milljarða króna vegna tapaðra útlána, að mestu fasteignalána, árið 2009. Bankinn fór í þrot í fyrravor með tugmilljarðaskuld við Seðlabankann á bakinu. Þórey S. Þórðardóttir, sem sæti á í slitastjórn VBS, útilokar ekki að fleiri mál verði send til sérstaks saksóknara. „Við erum að bíða eftir nákvæmri skýrslu frá Ernst & Young,“ segir hún.- jab
Fréttir Mest lesið Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Innlent Fimm ára leyfi frá borginni til að fara á þing Innlent Grjóthörð sparnaðarráð til Kristrúnar með ástarkveðju frá FA Innlent Lenti í kófi og ók í veg fyrir tvo vörubíla Innlent Hús varð fyrir tjóni vegna eldingar Innlent Lögbann sett á tilskipun Trumps Erlent Óttast að íbúar utan Reykjavíkur festist í gistiskýlunum Innlent Farinn af vettvangi en fannst með áverka stuttu síðar Innlent Greiddi konu sjö milljónir vegna ásakana Erlent Maðurinn hafi talið sig vera að fara að hitta stúlku á fermingaraldri Innlent Fleiri fréttir „Það á auðvitað að fara að lögum“ Segir borgina hafa unnið að lausn mála hjá Maríuborg um nokkurt skeið Maðurinn hafi talið sig vera að fara að hitta stúlku á fermingaraldri Boða til allsherjarfundar samninganefnda Kennarasambandsins Lögregla rannsakar tálbeituaðgerð ungmenna Grjóthörð sparnaðarráð til Kristrúnar með ástarkveðju frá FA Lenti í kófi og ók í veg fyrir tvo vörubíla Óttast að íbúar utan Reykjavíkur festist í gistiskýlunum Fimm ára leyfi frá borginni til að fara á þing Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Farinn af vettvangi en fannst með áverka stuttu síðar Hús varð fyrir tjóni vegna eldingar Viss um sigurinn en óviss um að komast inn á landsfundinn „Við erum algjörlega komin á endastöð“ „Enn einn áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu borgarinnar“ Staðfestir niðurfellingu rannsóknar á blaðamönnunum Áfellisdómur á stjórnsýslu borgarinnar og meintur fjárdráttur Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Fleiri skora á Guðrúnu Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita dreng í sturtuklefa Borgarstjóri vill ekki mikinn fjölda hælisleitenda í JL húsið Frestur til að skila inn tillögum rennur út í dag Fíkniefni í bala og milljónir í skúffu Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Vél frá Dubai lenti í Keflavík með veikan farþega Dæmdur fyrir höfuðhögg sem leiddi til dauða Ítreka að næringarráðleggingar fela ekki í sér boð og bönn Sjálfstæðisfélög skora á Guðrúnu Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Sjá meira