„Við förum snemma í jólaskap því við vinnum oft að markaðstengdu jólaefni og tökum fram jólaskraut í október. Síðan pökkum við því aftur niður, höldum í gamaldags hefðir og skreytum ekki jólatréð fyrr en á Þorláksmessu, eftir að hafa höggvið það sjálf í skógarferð," segir Inga Elsa, sem naut fúsra handa dætra sinna Telmu Lífar og Júlíu Sólveigar við súkkulaðigerðina.
„Stelpunum finnst allt sem tengist jólabakstri skemmtilegt og víst er hann hluti af jólaundirbúningi barnanna líka, með listilegri sköpun og fögru handverki þeirra."

Franskt súkkulaðihjúpað hunangskryddbrauð
Brauðið má baka sem hleif í jólakökuformi. Gott er að léttrista niðurskornar sneiðar og smyrja með smjöri.
500 g hveiti
60 g rúgmjöl
½ tsk. salt
2 ½ tsk. matarsódi
1 ½ tsk. kanill
1 ½ tsk. engifer
¼ tsk. múskat
¼ tsk. negull
¼ tsk. svartur pipar
½ tsk. anísfræ, heil
50 g smjör, mjúkt
1 stórt egg
350 g hunang
1 msk. appelsínubörkur, fínrifinn
250 ml vatn
200 g Síríus Konsum súkkulaði 70%
Forhitið ofn í 160-180 °C. Bleytið ofnskúffu lítillega að innan og leggið smjörpappír innan í þannig að pappír nái upp á brúnir. Smyrjið smjörpappír með smjöri og sáldrið örlitlu hveiti yfir. Sigtið saman í skál, hveiti, rúgmjöli, salti, matarsóda og kryddum. Sáldrið anísfræjum yfir. Þeytið saman mjúku smjöri, eggi, hunangi og appelsínuberki. Bætið vatni saman við og þeytið áfram. Bætið þurrefnum saman við smátt og smátt þar til að deig hefur samlagast. Hellið í ofnskúffu og bakið í 20 mínútur. Ef baka á heilan hleif er bökunartími 60 mínútur. Kælið brauðið niður áður en það er skorið út og dýft í bráðið súkkulaði. Skerið brauð út með piparkökumótum, dýfið í bráðið súkkulaði og leggið á smjörpappír. Skreytið með sykurskrauti. Látið storkna alveg áður en kökur eru losaðar af pappírnum.

(handa 8 til 10)
200 g Síríus Konsum 70% súkkulaði
50 g smjör, mjúkt
3 egg, aðskilin
100 ml rjómi
25 g flórsykur
1 mangó, vel þroskað
200 g jarðarber
ristaðar heslihnetur til skreytingar
Bræðið súkkulaði með smjöri í vatnsbaði. Aðskiljið egg og stífþeytið eggjahvítur. Blandið eggjarauðum, rjóma og flórsykri saman í annarri skál. Hrærið eggjarauðublöndu saman við brætt súkkulaði. Blandið stífþeyttum eggjahvítum varlega saman við súkkulaði með sleikju. Látið músina kólna aðeins. Afhýðið mangó og maukið, sem og jarðarber. Takið há og mjó glös og setjið 3 teskeiðar jarðarberjamauks á botn hvers glass. Setjið súkkulaðimús í sprautupoka með löngum stút og sprautið svolitlu í hvert glas. Setjið 3 teskeiðar mangómauks ofan á súkkulaðimúsina og síðan öðru lagi af súkkulaðimús ofan á. Skreytið glös með hnetum. Kælið í minnst 2 klukkustundir.

(um 36 stykki)
200 g Síríus Konsum 70% súkkulaði
Til að setja ofan á
rósapipar, chili, ristaðar hnetur (heslihnetur, möndluflögur, pekanhnetur eða valhnetur), þurrkaðir ávextir í bitum (apríkósur, rúsínur, sveskjur, kirsuber, trönuber, epli eða appelsínubörkur)
skrautsykur
Bræðið súkkulaði í vatnsbaði og látið kólna örlítið. Teiknið 36 hringi á bökunarpappírsarkir, sirka 3 cm í þvermál. Snúið pappír við þannig að teiknaða hliðin snúi niður. Setjið brætt súkkulaði á hringina með matskeið og dreifið úr svo þeki hringinn. Skreytið súkkulaðið strax, áður en fer að storkna.

(um 45 konfektmolar)
80 g rúsínur (um 90 rúsínur)
80 ml dökkt romm (einnig má nota sterkt Earl Grey-te)
500 g af góðri súkkulaðiköku
200 g Lübecker marsípan frá Lübeca
400 g Síríus Konsum 56% súkkulaði
50 g hýðislausar möndlur, án hýðis, skornar í litlar flísar
Leggið rúsínur í bleyti í rommi í klukkustund. Hellið rommi af rúsínum og setjið ásamt súkkulaðiköku og marsípani í matvinnsluvél. Maukið saman. Takið um teskeið af deigi og hnoðið í litlar kúlur. Hnoðið tvær rúsínur saman við hverja kúlu. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði. Veltið kúlum upp úr súkkulaði með gaffli og leggið á smjörpappírsklæddar bökunarplötur. Leggið eina möndluflís á hverja kúlu. Látið kólna áður en kúlur eru losaðar af pappír og settar í fallega öskju. Kúlurnar hafa viku geymsluþol í kæli. Einnig má frysta þær.