„Um jólin eru réttirnir margvíslegir: ostrur, lax, humar, önd og kalkúnn, hverskyns kæfu að ógleymdum „coq au vin" eða unghana í vínsósu svo fátt eitt sé nefnt. Fyrir mér er það samt „foie gras" sem stendur upp úr," segir Björg og lýsir því hvernig hún kolféll fyrir gæsalifur um árið.
„Alvöru gæsalifur er alltaf góð, nánast sama hvernig hún er fram borin. En daginn sem Gaby Franchini, matreiðslumeistari í Metz bauð mér upp á gæsalifur á léttristaðri baguette-sneið með nýmöluðum pipar varð ég fyrir upplifun.
Sterk piparkornin drógu fram mjúkt og fínlegt bragð gæsalifrarinnar og vel kælt kampavínið gerði upplifunina ómótstæðilega. Eftir það finnst mér gæsalifur órjúfanlegur hluti af jólum í Frakklandi."
Björg segir ómótstæðilegt bragð þó ekki eina kostinn við þennan rétt, því hann er bæði einfalt og fljótlegt að útbúa.
„Það eina sem þarf er góð gæsalifur sem er skorin niður í passlega stórar sneiðar. Það getur reyndar verið þrautin þyngri að finna góða gæsalifur hér á Fróni og vissara að gera ráð fyrir töluverðum útgjöldum.
Sneiðunum er raðað á ekta ristaðar franskar baguette-sneiðar og kryddað með sterkum pipar. Et voilà!"

Örlítið meiri vinnu þarf við að útbúa „galette de roi" eða köku kóngsins sem Frakkar borða kringum þrettándann og Björg segir algjört sælgæti.
„Í þessa einföldu smjördeigsköku er laumað lítilli „baun", það getur verið lítil leirstytta eða annað sem þolir brennheitan ofn.
Þeim sem fær „baunina" í sinni kökusneið er afhent kóróna og fær að vera kóngur einn dag.
Þessi siður er rakinn til Rómverja þar sem einn þræll fékk á tilteknum degi allar óskir sínar uppfylltar," upplýsir hún og lætur uppskriftina fylgja með. -rve

Galette de roi eða kóngakaka
Tvær smjördeigsplötur sem ná yfir meðalstórt, hringlaga form
200 g af möluðum möndlum eða möndluflögum
100 g smjör
3 egg
125 g sykur
Lögg af rommi
Bræðið smjörið. Blandið vandlega saman bræddu smjörinu, sykri, tveimur eggjum og möndlum ásamt rommlögg. Leggið smjördeigsbotn í form, ágætt er að nota bökunarpappír. Dreifið blöndu yfir botninn og komið „bauninni" fyrir. Leggið síðari smjördeigsbotn yfir allt saman. Penslið með eggjarauðu. Tilvalið er að skera skrautlínur í deigið. Bakið í ofni við um það bil 200 gráður í 25-30 mínútur.