Engill fór í fátækt hús – Kristinn Sigmundsson og Ásdís Kristmundsdóttir ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju
Þetta lag er að finna á plötunni „Ég held glaður jól" frá árinu 1985 sem ég hef ekki fundið á öðru formi en vínyl. Ég er almennt ekki hrifinn af „Áfram Jesús- og/eða Guð!"-jólalögum en lagið er það góð smíð að textinn truflar mann ekki mikið.
Komdu til mín fyrsta kvöldið jóla – Þrjú á palli
Þú munt elska það eða hata það, það er enginn millivegur. Ég elska það og nota það óspart á fólk sem hatar það.
Fairytale of New York– The Pogues
Þetta er klassískt val. Þetta lag hefur fylgt mér í ansi mörg ár og þó að ég hlusti nú ekki eins mikið á það í dag og ég gerði þá hafði það klárlega mikil áhrif. Ógæfa er líka alltaf heillandi.
Nenni ekki norður um jólin – Jólagestir Bekkens
Þetta lag er eftir góða drengi og var samið fyrir jólalagakeppni Rásar 2 nú í ár. Mér finnst tónninn í því skemmtilegur og viðlagið er gullmoli. Svo á þetta vel við í ár þar sem ég fer ekki norður um jólin heldur til Japans, ég treysti bara ekki Víkurskarðinu.
Jólafeitabolla – Morðingjarnir
Þetta lag er algjörlega frábært, sérstaklega af því að ég spila á trompet í því. Ég sýg rassgöt á trompet og er því nokkuð ánægður með að másið mitt hafi verið notað. Svo eru góð stuðjólalög vægast sagt sjaldgæf.
Fimm bestu jólalögin
