Veiði

Breytingar á Veiðivísi

Veiðimenn svala þorstanum við Brúará síðasta haust.
Veiðimenn svala þorstanum við Brúará síðasta haust. Mynd/Trausti
Aukinn kraftur verður settur í umfjöllun um veiði á Veiðivísi frá og með þriðjudeginum 1. maí.

Fjórir blaðamenn hafa verið fengnir til að sinna vefnum. Þetta eru þeir Garðar Örn Úlfarsson ([email protected]), Kristján Hjálmarsson ([email protected]), Svavar Hávarðsson ([email protected]) og Trausti Hafliðason ([email protected]). Þeir félagar hafa meðal annars skrifað um veiði í Fréttablaðið undanfarin misseri og munu reyndar halda því áfram.

Hafi menn ábendingar um skemmtilegar veiðifréttir þá endilega sendið einhverjum blaðamannanna tölvupóst.

Fylgist vel með á þriðjudaginn.






×