Þrír sigrar í röð hjá Þórsurum - Smith með 46 stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. nóvember 2012 21:05 Darri Hilmarsson. Mynd/Daníel
Þórsarar úr Þorlákshöfn eru komnir upp að hlið Grindavíkur og Stjörnunnar í 2. til 4. sæti Dominos-deildar karla í körfubolta eftir níu stiga heimasigur á Fjölni í kvöld, 92-83. Þórsliðið var að vinna sinn þriðja leik í röð þar af annan sigurinn á aðeins þremur dögum því liðið vann KR á heimavelli á miðvikdagskvöldið. Benjamin Curtis Smith var gjörsamlega óstöðvandi hjá Þór í leiknum en hann skoraði 46 stig á 40 mínútum. Smith hitti úr 15 af 25 skotum sínum þar af 7 af 12 fyrir utan þriggja stiga línuna. Hann var einnig með 10 fráköst og 4 stoðsendingar. Fjölnismenn bitu frá sér framan af leik, voru 24-21 yfir eftir fyrsta leikhluta og náðu mest tíu stiga forskoti í öðrum leikhlutanum, 31-21. Þórsarar náðu að minnka muninn niður í þrjú stig fyrir hálfeik, 50-47, og tóku síðan völdin í seinni hálfleiknum. Fjölnisliðið byrjaði vel í vetur en hefur nú tapað þremur leikjum í röð. Liðið er eins og er í 8. sæti deildarinnar með sex stig.Þór Þ.-Fjölnir 92-83 (21-24, 26-26, 24-18, 21-15)Þór Þ.: Benjamin Curtis Smith 46/10 fráköst, Darrell Flake 23/11 fráköst, David Bernard Jackson 11/6 fráköst, Darri Hilmarsson 9, Baldur Þór Ragnarsson 3/10 stoðsendingar.Fjölnir: Sylverster Cheston Spicer 21/15 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 16, Jón Sverrisson 11/8 fráköst, Árni Ragnarsson 11/4 fráköst, Paul Anthony Williams 8, Arnþór Freyr Guðmundsson 7, Gunnar Ólafsson 7, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Ítölsk stelpa ferðaðist 1.800 kílómetra til að sjá Jón Axel Körfubolti Stuðningsmenn Vestra úti í horni vegna kröfu um aðskilnað Íslenski boltinn „Hætti þessari fortíðarþráhyggju minni með Vestmannaeyjar“ Handbolti „Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Fram 3-1 | Verðskuldaður sigur Eyjamanna Íslenski boltinn Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Enski boltinn Skalf meðan hann lagði Carlsen: „Þetta var algjörlega galið“ Sport Alfreð kom öllum á óvart með vali sínu Handbolti Pjakkarnir erlendis þegar KR mætir Blikum Íslenski boltinn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík - Stjarnan | Heldur spennan áfram í Smáranum? „Mjög auðveld aðlögun fyrir mig“ Ítölsk stelpa ferðaðist 1.800 kílómetra til að sjá Jón Axel „Gott að sjá honum blæða á vellinum“ „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Hvergerðingar í úrslit umspilsins „Þjöppuðum okkur saman og kláruðum þetta“ Jón Axel og félagar upp í spænsku úrvalsdeildina Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 73-76 | Njarðvíkur-sigur í spennutrylli Tryggvi Evrópumeistari með Bilbao Basket Fyrrum nýliði ársins í NBA reynir fyrir sér í hnefaleikum „Þessar stelpur kalla ekki allt ömmu sína“ „Vonandi nær maður að grípa í einn svona bikar“ Hörður undir feldinn Luka öflugur og Lakers jafnaði einvígið Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn „Við töpum boltanum í annarri hverri sókn“ Uppgjörið: Valur - Haukar 80-82 | Köstuðu sigrinum frá sér og klikkuðu á vítunum „LeBron þarf að fara í P. J. Washington hlutverkið“ Stólarnir afar öflugir þegar glittir í lokaúrslitin Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Nico Harrison: Áttaði mig ekki á hversu sterk ást þeirra á Luka var Falko áfram í Breiðholtinu Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð „Stemmningin í húsinu hjálpar“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Valur og KR unnu Scania Cup Sjá meira