Telja sig hafa keypt vannýtta gullnámu [email protected] skrifar 23. nóvember 2012 10:00 Skíðaskálinn í Hveradölum Framtíðarskipulag Skíðaskálans gerir meðal annars ráð fyrir baðlóni og búningsaðstöðu.Teikning/Magnús Jensson arkitekt
Hjónin Inga Lísa Sólonsdóttir og Aron Þorsteinsson, sem keypt hafa hinn fornfræga Skíðaskála í Hveradölum af Svavari Helgasyni, áforma þar stóraukin umsvif með verkefninu Skíðaskálinn í Hveradölum – Luxury resort. Í viðskiptaáætlun kemur fram að úttekt á rekstri og arðsemi Skíðaskálans lofi afar góðu. „Þessi fjárfesting er svokölluð gullnáma sem hefur verið afar vannýtt eða legið í dvala, gullnáma sem býður í raun upp á óendanlega möguleika," segir í áætluninni. Skapa á mun meiri tekjur en nú er með því að hafa opið allt árið. Jólahlaðborð hafa hingað til verið burðarás rekstursins. Inga Lísa segir ætlunina að bjóða heim göngufólki og náttúruunnendum með stórbættri aðstöðu og lagfæringu á stígakerfi. Aðgangur verður að þremur heitum pottum sem nýta mikinn jarðhita á svæðinu. Laða á að tónlistarmenn jafnt á sumrum sem vetrum, stórauka verslun á staðnum með sölu á alls kyns sérvöru og efna til útimarkaða. Ekki síst á að bjóða veitingar árið um kring og leigja út mismunandi sali skálans fyrir alls kyns viðburði. Þá er ætlunin að fá skólabörn í fræðsluferðir og tengja greiðasöluna við gestamóttöku Hellisheiðarvirkjunar sem er þar skammt frá. Meðal annarra hugmynda Ingu og Arons er síðan uppbygging baðlónsins Viking Lagoon, gerð golfvallar og smíði þyrlupalls fyrir útsýnisflug. „Guðdómlegt umhverfi í faðmi fjalla veitir sérstöðu og lyftir Skíðaskálanum í hæstu hæðir þar sem heitir leir- og gufuhverir og aðrar perlur íslenskrar náttúru veita Skíðaskálanum þá réttmætu upphefð að geta talist veislu- og náttúruparadís," segir í viðskiptaáætluninni sem fjárfestar fá nú til skoðunar. Áformin hafa verið kynnt fyrir bæði Orkuveitu Reykjavíkur, sem leigir Skíðaskálanum land, og fyrir skipulagsnefnd Ölfuss sem tók vel í verkefnið. Svavar Helgason mun ljúka jólahlaðborðahaldinu sem nú stendur yfir og afhenda Ingu og Aroni Skíðaskálann í janúar. Inga Lísa segir þau hjónin sjálf munu búa á staðnum sem gestgjafar. „Margir líta svo á að við séum að endurvekja Eden í nútímalegri mynd. Þetta verður okkur draumaveröld," segir Inga Lísa. „Hvað er betra en sunnudagsbíltúrar, útivist og eðalveisluhöld í flottasta kastala landsins? Hveradalir er staður kærleiks og menningar, hér endurskrifaði Halldór Laxness Íslandsklukkuna og var reglulegur gestur í þessari náttúruperlu á heimsvísu."
Fréttir Mest lesið Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Innlent Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum Innlent Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Erlent „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Innlent Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi Innlent Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Innlent „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Innlent Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Innlent Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Erlent Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Innlent Fleiri fréttir Ofbeldi í nánum samböndum og mótmæli á Tenerife Einhleypir karlmenn standa verst Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Af Alþingi til Fjallabyggðar „Vísbendingar um að fjárhagur sé að vænkast hjá borginni“ „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi „Með allra besta móti miðað við árstíma“ Jónas Ingimundarson er látinn Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Sex hópnauðganir til rannsóknar og lengri opnunartími sundlauga Von á fallegum, litríkum og kvikum norðurljósum í kvöld Sex hópnauðganir á borð lögreglu á árinu Steindór Andersen er látinn Gæsluvarðhald framlengt yfir konunni Sjálfstæðisflokkur fengi tæpan þriðjung Annað veiðifélag rannsakað vegna ólöglegs fiskeldis Breskur dómur grafi undan tilverurétti trans fólks Mál áfengisnetverslana send aftur til lögreglu Rekstur hestaleigu stöðvaður Fjörutíu mínútna röð í einn og hálfan klukkutíma í morgun Örtröð í Leifsstöð og umdeildur hæstaréttardómur í Bretlandi Yngstu börnin sem hefja innritun í haust fjórtán mánaða Röðin í öryggisleitina nær langt inn í brottfararsal „Besta leiðin upp úr fátækt er að hjálpa fólki að eignast“ Sjá meira