Rósarstríðinu er ekki lokið [email protected] skrifar 24. nóvember 2012 10:00 Skrifstofan Lögmaður Rósarinnar hefur farið fram á öll gögn sem lágu til grundvallar ákvörðun um að afmá félaga af kjörskrá.fréttablaðið/vilhelm
Lögmaður Jafnaðarmannafélagsins Rósarinnar hefur óskað eftir fundargerðum kjörstjórnar Samfylkingarinnar í Reykjavík. Félagið er ósátt við þá ákvörðun að 350 nýir félagar í Rósinni hefðu ekki fengið að taka þátt í prófkjöri flokksins sem fram fór um síðustu helgi. Sigurður G. Guðjónsson lögmaður segir að óskað hafi verið eftir fundargerðunum á mánudag. Engin viðbrögð hafi borist við beiðninni en hann telur að Rósin eigi rétt á að fá gögnin. „Ef maður ætlar að skoða réttarstöðu einhvers þá þarf maður allavega að hafa þau gögn sem þá réttarstöðu snerta." Stefán Benediktsson, formaður kjörstjórnar, vildi ekki staðfesta að beiðni um fundargerðirnar hefði borist. Fréttablaðið hefur undir höndum afrit af þeirri beiðni þar sem óskað er eftir „öllum gögnum sem lágu til grundvallar" ákvörðuninni um að afmá fólkið af kjörskrá. Spurður út í beiðni Rósarinnar segir Stefán: „Ég get ekki svarað því fyrr en ég er búinn að afhenda svar okkar í kjörstjórninni." Birgir Dýrfjörð, formaður Rósarinnar, segir ekki búið að ákveða hver næstu skref verða. „Málið er að ég vil fá að vita hvað gerðist. Við fáum ekki að vita hverjir kærðu. Nú eru mjög strangar reglur um að kjörstjórn eigi að halda fundargerðarbók og annað, en maður bíður bara eftir svari um hvað gerðist." Forsaga málsins er sú að félagatal Rósarinnar fór inn á kjörskrá og félagar, nýskráðir sem aðrir, fengu sendar upplýsingar um prófkjörið. Nöfn þeirra voru á kjörskrám sem frambjóðendum voru afhentar. Eftir ábendingar um að einhverjir þeirra könnuðust ekki við að hafa skráð sig í félagið ákvað kjörstjórn að kalla eftir staðfestingu á skráningunum. Erindi um það barst Rósinni klukkan 21.18 á miðvikudag með skilafresti til klukkan 13 daginn eftir. Birgir segist fráleitt að halda því fram að Rósin hafi ekki getað skilað inn staðfestingunum. „Ég vil ekki liggja undir því að við höfum ekki getað gert þetta og þess vegna hafi okkur verið hent út. Við fengum bara aldrei tækifæri til þess. Það er enginn vandi að tapa í keppni, ef þú ert til dæmis að hlaupa í hlaupakeppni og allir hlaupa jafn langt. En ef einhver fer að stytta sér leið, einhver fer að hafa rangt við, þá unir maður ekki úrslitum."
Fréttir Mest lesið Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Innlent Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Innlent Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Erlent Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Innlent Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Erlent Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Innlent Maðurinn er laus úr haldi Innlent Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Innlent Fleiri fréttir Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að fara með rangt mál um dvalarleyfi Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Maðurinn er laus úr haldi „Við megum mótmæla því að verið sé að drepa saklaust fólk“ Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Falla frá gjaldskrárhækkunum og árásir á tímum vopnahlés Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Ferill fyrrum forsætisráðherra og verðlaunaður sagnfræðingur í Sprengisandi Rólegheitaveður á páskadag Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu Mótmæla brottvísun Oscars Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Engin tengsl milli þolenda og gerenda Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna Bora tilraunaholu til að framleiða heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Koma strandaglópunum heim í kvöld Áhyggjuefni að brotaþolar treysti ekki dómstólum Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Fólskuleg líkamsárás og strandaglópar í suðri „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Sjá meira