Líta falsaða pappíra alvarlegum augum [email protected] skrifar 24. nóvember 2012 08:00 Börn í skóla Barnaverndarstofa hefur ekki fengið vitneskju um fleiri mál en það sem nú er í rannsókn lögreglu og það sem dæmt var í fyrir fimm árum síðan. fréttablaðið/ „
Við lítum það mjög alvarlegum augum ef það er þannig að það kunni að vera mörg börn hér á Íslandi sem koma á fölskum pappírum. Við höfum mikinn áhuga á því að fylgjast með þeirri rannsókn því þá er mögulega um að ræða miklu alvarlegra mál en við höfum hingað til talið vera," segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá undanfarna daga telur Útlendingastofnun að fjöldi barna hafi komið hingað til lands og fengið dvalarleyfi með því að framvísa fölskum pappírum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál pars, sem kom með ungt barn hingað til lands fyrr á árinu og sagðist vera foreldrar þess. Í Fréttablaðinu í gær sagði Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastýra Mannréttindaskrifstofu Íslands, að nokkur mál af þessu tagi hefðu komið á borð hennar á undanförnum árum. Í sumum tilvikum hefðu börnin verið misnotuð á einhvern hátt og viljað komast af heimilunum sem þau dvöldu á. Bragi segir Barnaverndarstofu ekki vera kunnugt um þessi mál og aðeins hafa vitneskju um tvö mál. „Það er ekki gott ef menn fá ábendingar um að verið sé að misnota börn án þess að tilkynna það til barnaverndarkerfisins. Annaðhvort er þetta misskilningur eða málin hafa einfaldlega ekki verið tilkynnt. Við útilokum auðvitað ekkert, og bíðum eftir frekari upplýsingum frá Útlendingastofnun um þetta. Fram að þessu hefur stofnunin ekki haft tök á því að fara í gegnum alla pappíra sem henni berst með þetta fyrir augum." Bragi segir ekki mikla reynslu komna á mál af þessu tagi, en almennt sé meginregla barnaverndaryfirvalda að kanna hagi og aðstæður barna. „Það er grennslast fyrir um það hverjir eru raunverulegir foreldrar barnsins og hvernig það bar að að þeir létu barnið frá sér eða með hvaða hætti það gerðist að fólkið sem hingað kom með barnið öðlaðist yfirráð yfir því." Reynslan frá nágrannaríkjum okkar sé að langoftast reynist börnin náskyld þeim sem koma með þau og ekkert saknæmt eða misjafnt liggi þar að baki. „Það er ekki hægt að útiloka eitt eða neitt þegar svona mál koma upp eins og núna, það verður að rannsaka málið til fullnustu til að reyna að leiða í ljós hvað liggur að baki."
Fréttir Mest lesið Steindór Andersen er látinn Innlent Röðin í öryggisleitina nær langt inn í brottfararsal Innlent Fjörutíu mínútna röð í einn og hálfan klukkutíma í morgun Innlent Rekstur hestaleigu stöðvaður Innlent Jónas Ingimundarson er látinn Innlent Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Innlent Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Innlent Sjálfstæðisflokkur fengi tæpan þriðjung Innlent Eyjar og sker tilheyra næstu jörð Innlent Sex hópnauðganir á borð lögreglu á árinu Innlent Fleiri fréttir „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi „Með allra besta móti miðað við árstíma“ Jónas Ingimundarson er látinn Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Sex hópnauðganir til rannsóknar og lengri opnunartími sundlauga Von á fallegum, litríkum og kvikum norðurljósum í kvöld Sex hópnauðganir á borð lögreglu á árinu Steindór Andersen er látinn Gæsluvarðhald framlengt yfir konunni Sjálfstæðisflokkur fengi tæpan þriðjung Annað veiðifélag rannsakað vegna ólöglegs fiskeldis Breskur dómur grafi undan tilverurétti trans fólks Mál áfengisnetverslana send aftur til lögreglu Rekstur hestaleigu stöðvaður Fjörutíu mínútna röð í einn og hálfan klukkutíma í morgun Örtröð í Leifsstöð og umdeildur hæstaréttardómur í Bretlandi Yngstu börnin sem hefja innritun í haust fjórtán mánaða Röðin í öryggisleitina nær langt inn í brottfararsal „Besta leiðin upp úr fátækt er að hjálpa fólki að eignast“ Eyjar og sker tilheyra næstu jörð Hvítri Toyotu stolið í Mosfellsbæ Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Leikhúsþýðingar Vigdísar gefnar út Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Brýnt að stækka Samgöngusafnið í Skógum „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Tveir „galdramenn“ í haldi Sjá meira