Matur

Sniðugir aukabitar

Hugaðu vel að aukabitanum!
Hugaðu vel að aukabitanum!
Lykillinn að stöðugum blóðsykri og mikilli brennslu er að borða reglulega og ekki mjög mikið hverju sinni. Þess vegna skiptir aukabitinn máli.

Þetta og fleira fróðlegt segir í bókinni Sex kíló á sex vikum eftir Ulrika Davidsson og Ola Lauritzson, sem bókaútgáfan Bjartur & Veröld gaf út nýverið.

Hér má finna uppskriftir að nokkrum aukabitum með lágum sykurstuðli sem einfalt er að útbúa:
Berið þeytinga fram í fallegum glösum, það er einfaldlega skemmtilegra að drekka þá svoleiðis.

Jarðarberjaþeytingur

1 dl frosin jarðarber

1 dl hrein jógúrt eða skyr

1 dl appelsína



Takið börkinn af appelsínunni, setjið allt í blandarann og blandið í nokkrar sekúndur. Berið strax fram.

Orkustangir

Tilvalið nesti til að taka með í vinnuna og í ferðalög. 25-30 stk.

600 g sykurlaust granóla

1 dl trönuber

½ dl furuhnetur

2 dl af blönduðum fræjum, s.s. graskersfræ og sólblómafræ

2 egg

Hitið ofninn í 175 gráður. Blandið öllu hráefninu saman í skál. Klæðið ofnskúffuna með bökunarpappír og dreifið blöndunni í skúffuna. Látið kólna og skerið síðan í bita.

Mangó- og trönuberjakúlur

12 stk.

2 sneiðar þurrkað mangó

1 dl kasjúhnetur

1 dl trönuber

3 dl kókósmjöl

½ dl vatn

Leggið mangóið í bleyti í nokkrar mínútur. Malið kasjúhneturnar í matvinnsluvél í nokkrar sekúndur. Bætið mangósneiðum, trönuberjum, helmingnum af kókosmjölinu og vatni út í og hrærið í jafnt deig. Mótið deigið í litlar kúlur og veltið upp úr afganginum af kókosmjölinu. Geymið á köldum stað.

Súkkulaðikúlur

12 stk.

2 gráfíkjur

½ dl vatn

1 dl kasjúhnetur

½ dl kakó

1 dl kókósmjöl

1 dl sesamfræ

Leggið gráfíkjurnar í bleyti í nokkrar mínútur. Malið kasjúhneturnar í matvinnsluvél í nokkrar sekúndur. Bætið við gráfíkjum, kakói og kókosmjöli og hrærið í jafnt deig. Mótið deigið í litlar bollur og veltið upp úr sesamfræjum. Geymið á köldum stað.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.