Ljóst er að það eru ekki einungis hin ýmsu góðgerðarmál sem njóta góðs af Reykjavíkurmaraþoninu sem fer fram í dag. Árvöklir útsendarar Bílastæðasjóðs sjá til þess að sjóðurinn fá nefnilega sinn skerf líka.
Á túninu til móts við Umferðarmiðstöðina BSÍ voru í það minnsta þrír bílastæðaverðir önnum kafnir við að sekta fólk sem lagt hafði bílum sínum upp á gangstéttar og inn á tún. Ætla má að þarna hafi nokkrum hundruðum bíla verið lagt ólöglega þannig að líklegt þykir á sjóðurinn raki vel inn í dag.
Harmageddon