María Krista er hér með girnilega uppskrift af tertunni sem allir verða að smakka.
Svamptertubotn:
Einn pk ljóst kökumix Funksjonell
1 dl grísk jógúrt
1 dl vatn
1 dl olía
Hrærið og bakið í tveimur formum skv leiðbeiningum.

Einn flottur marenge toppur á tertu:
2 eggjahvítur stofuhiti
3 msk Sukrin Melis
4 dropar vanillustevía
1/8 tsk cream of tartar
1/16 tsk salt
Hitið ofn í 120 gráður
Setjið bökunarpappír á plötur og ágætt að hafa plötuna á næstlægstu rim í ofninum.
Þeytið saman eggjahvítur, gott að nota glerskál eða stálskál, sukrin melis,
vanillu, cream of tartar og salt.
Þeytið vel eða þar til gljái er komin á blönduna og hún nokkuð stíf.
Sprautið marengeblöndunni í doppur,nokkuð þétt svo þær renni saman í ofninum,
ágætt að teikna passlegan hring á smjörpappírinn fyrst.
Má líka sprauta í aðskildar doppur til að fá marga litla marenge toppa. Fallegt ofan á muffins kökur.
Bakið í 20 mín á 120 gráðum. Svo má lækka hitann í 90 gráður og baka aðrar 20 mín.
Slökkvið á ofninum og leyfið marenge að stífna í 2 tíma eða lengur.

Kaffikrem á milli:
80 gr smjörvi eða ísl smjör.
2 msk kakó
3 msk Sukrin Melis
5 dropar vanillustevía
1 msk instant kaffiduft
1/2 tsk xanthan gum
Hindberjasulta á milli botna:
450 gr hindber (afþýdd eða fersk)
25 gr Sukrin Melis
20 dropar Stevía
1 tsk xanthan gum
Setjið allt nema xanthan gum í pott, hitið vel þar til berjablandan fer að malla, dreifið svo xanthan gumminu yfir og hrærið stöðugt í þar til sultan er hæfilega þykk 1-3 mín.
Hellið blöndunni í 2 góðar sultukrukkur og leyfið henni að kólna. Góð á vöfflur, í bakstur og margt fleira.
Bakið botnana, setjið sultu á milli, kaffikrem ofan á og svo einn pela af þeyttum rjóma.
Marengetoppurinn fer svo ofan á síðast og voila Menningarnæturterta.