Sannleikurinn: Stöðumælaverðir segja stöðuna aldrei hafa verið eins slæma Andri Þór Sturluson skrifar 22. september 2013 21:00 Stöðumælavörður við mælingar á stöðunni.
Staðan er gríðarlega slæm samkvæmt nýjustu mælingum stöðumælavarða sem þeir birtu nú rétt fyrir helgi. Allt er á niðurleið, allir eru óánægðir og ekki er útlit fyrir að það breytist í bráð. Niðurstaðan kemur engum á óvart sem fylgst hefur með stöðumælum borgarinnar en þeir hafa sýnt sláandi mælingar um áraraðir. Mýmörg tækifæri gáfust til að bjarga því sem bjargað varð en spilling embættismanna, milljarða króna bónusgreiðslur, ívilnanir til stórfyrirtækja og afar óhagstæðar niðurstöður seinustu alþingiskosninga voru síðustu fjórir naglarnir í kistuna. Ítarleg rannsókn stöðumælavarða leiðir í ljós að grafalvarleg staðan var ráðamönnum ljós fyrir löngu síðan. Slæmri stöðu var þó haldið leyndri eins og kostur var og gripið til örþrifaráða til bjargar sem svo gerðu illt mun verra. Engu að síður höfðu stjórnendur fjölda tækifæra til að bjarga ástandinu en gerðu ekkert. „Staðan hefur ekki mælst svona slæm síðan mælingar stöðumælavarða hófust. Við höfum lengi varað við því að staðan væri sífellt að versna en viðvaranir okkar hafa hingað til verið hunsaðar,“ segir Hákon Atlason, stöðumælavörður númer 19, sem mælt hefur stöðuna í miðborg Reykjavíkur síðastliðin átta ár. „Það þarf eitthvað stórkostlegt að gerast svo staðan fari að batna og fjölga þarf stöðumælavörðum til að fylgjast með.“Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og ekkert mál er of stórt eða of lítið. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en vinsamlegast ekki birtast þar.
Harmageddon Mest lesið Shades of Reykjavík með nýtt lag og myndband Harmageddon „Ráðherra grátandi á Facebook eins og táningsstelpa“ Harmageddon Hannes Smárason kominn aftur í erfðabransann Harmageddon Félagsmálaráðherra ræddi húsnæðismál, Breiðholtið og skuldaniðurfellingu Harmageddon Dómsmálið yfir Gísla hugsanlega mannlegur harmleikur Harmageddon David Beckham samþykkir að koma fram í nýju tónlistarmyndbandi Harmageddon Ný heimildarmynd um Kurt Cobain forsýnd Harmageddon Stöðvaði tónleika til að gefa blindum aðdáenda trommukjuða Harmageddon Nóg að gera hjá Mammút á næstunni Harmageddon