Gómsæt brauðterta 14. október 2013 21:00
Ég bjó til brauðtertu fyrir eins árs afmæli sonar míns. Þegar maður er svona ungur þá er ekki í boði að háma í sig súkkulaðiköku þannig að ég ákvað að gera köku sem hann gæti fengið smá smakk af. Í þessari uppskrift maukaði ég saman reyktum laxi og sýrðan rjóma, að sjálfsögðu heimagerðum sýrðum rjóma. Maður smyr svo rjómaosti utan á brauðtertuna, en rjómaostur og reyktur lax passa svo vel saman. Uppskriftin kemur upphaflega frá tímaritinu Saveur. Ég ákvað að nota brauðtertubrauð sem fæst út í búð en einnig er hægt að baka sitt eigið brauð og skera það í sneiðar, langsum. Þetta endaði á að vera hin glæsilegasta terta og sómaði sér vel á hlaðborðinu og ekkert er til fyrirstöðu að stinga einu eða fleiri kertum á þessa brauðtertu ef það er afmælisbarn á staðnum sem vill blása. Mynd/Soffía Laxamauk 400 g reyktur lax 100 ml mæjónes 100 ml rjómi Blandið saman reyktum laxi, mæjónesi og sýrðum rjóma í blender eða matvinnsluvél. Rjómaostablanda 300 g rjómaostur 300 ml sýrður rjómi 1 tsk salt 1/2 tsk svartur pipar Blandið saman rjómaosti og sýrðum rjóma með gaffli. Kryddið með salti og pipar. Sinnepssósa 1 1/2 msk sykur 1 1/2 msk Dijon sinnep, við stofuhita 1 1/2 msk sætt sinnep, við stofuhita 1/2 tsk salt 100 ml góð ólífuolía, við stofuhita Hráefnið í sinnepssósuna þarf að vera við stofuhita svo það skilji sig ekki. Blandið öllu saman og hrærið því vel saman t.d með gaffli. Álegg milli laga og ofan á tertu 400 g reyktur lax 2-3 soðin egg 1/2 agúrka Romaine salat Steinselja, með flötum laufum Smjör, 2-3 msk Mynd/Soffía Fyrsta lag: Smyrjið laxamaukinu á brauðtertubrauðsneið og þekið svo með agúrkusneiðum. Annað lag: Smyrjið smá smjöri á næstu brauðtertusneið. Leggið svo laxasneiðar ofan á brauðsneiðina. Geymið nokkrar sneiðar til að skreyta tertuna. Smyrjið sinnepssósunni yfir laxasneiðarnar. Dreifið salati yfir laxinn og sinnepssósuna. Gerið fyrsta og annað lag til skiptist miðað við hversu mörg lög þið viljið hafa, ég var með fimm sneiðar og því tvö lög af hvoru. Mynd/Soffía Nú kemur að því að draga fram listamanninn í ykkur. Ég skreytti með soðnu eggi sem ég skar í sneiðar, reyktum laxi, rækjum og steinselju. Þessi með flötum laufum kemur fallega út. Byrjið á því að smyrja rjómaostblöndunni á allar hliðar kökunnar, svipað og ef þið væruð að smyrja köku með smjörkremi. Ég bjó til rósir úr laxinum, það er mjög auðvelt, maður einfaldlega rúllar upp þunnum laxasneiðum. Mynd/Soffía Soffía heldur úti matarblogginu Húsið við sjóinn.
Brauðtertur Uppskriftir Mest lesið „Ég hélt svo innilega að það væri stelpa“ Lífið „Sá síðasti dó á þessu ári“ Lífið Úttekt á merkilegu orðfæri Ingu Sæland Lífið Ást er: Sigtaði sinn mann út á vellinum Lífið Bríet olli vonbrigðum Gagnrýni Yfir fimmtíu fengu sér tattú í stórafmæli Steinda Lífið Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney Bíó og sjónvarp Selena komin með hring Lífið Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Tónlist Töfrandi og kynngimagnaður kvennaheimur opnast Lífið samstarf