Að sögn bandarískra fjölmiðla, glímir söngvarinn góðkunni, Justin Bieber við fíkniefnavanda. Hann er sagður misnotahóstameðal frá íslenska fyrirtækinu Actavis.
Hóstasaftið er ófáanlegt í Bandaríkjunum. Talið er að Bieber nýti sér kanadískt þjóðerni sitt til þess að verða sér út um það.
Aðstandendur Biebers eru sagðir hafa hvatt hann til að leita sér hjálpar á þessari fíkn. Bandarískir rapparar hafa sýnt Actavis-merkinu mikinn áhuga, eins og Vísir hefur greint frá.
Bieber hefur verið í miklum vandræðum undanfarið, eftir að hann var sakaður um að kasta eggjum í hús nágranna síns. Lögreglan hefur rannsakað málið og fengið leitarheimildir, bæði til þess að leita á heimili söngvarans og í síma hans.
