Stundin hefst í Nýja Sjáandi á staðartíma klukkan 20.30 á laugardaginn og breiðist síðan út yfir tímabelti jarðarkringlunnar. Jarðarstundin stendur því yfir frá klukkan 20:30 til 21:30 hér á landi.
Jarðarstund er alþjóðlegur umhverfisviðburður sjálfboðaliðasamtakanna World Wildlife Fund. 7 þúsund borgir í 150 löndum munu taka þátt í viðburðinum.
„Margir hafa hugann við hlýnun jarðar af mannavöldum og þau áhrif sem meðal annars birtast í náttúruhamförum eins og ofsaveðri,“ segir á vef borgarinnar.
Margar borgir taka þátt í viðburðinum með því að slökkva ljós sem lýsa upp frægar byggingar. Í París verður slökkt á ljósunum sem lýsa upp Eiffel turninn og slökkt verður á ljósunum sem lýsa upp Óperuhúsið í Sydney.
Kóngulóarmaðurinn styður viðburðinn
Kóngulóarmaðurinn hefur gengið til liðs Jarðarstundasamtökin sem einskonar alþjóðlegur sendiherra samtakanna í ár. Kóngulóarmaðurinn styður viðburðinn með ýmsu móti, jafnt á Íslandi sem í öðrum löndum og hvetur hann unga fólkið til að taka þátt.
Hvatning fyrir hvern og einn að huga að eigin umgengni
Reykjavíkborg hvetur alla sem hafa forræði yfir upplýstum byggingum í borginni til að slökkva á lýsingunni þessa klukkustund sem Jarðarstundin er. Ráðhúsið í Reykjavík, Perlan í Öskjuhlíð og aðalbygging Háskóla Íslands eru meðal þeirra bygginga sem þegar hefur verið ákveðið að slökkva á lýsingu á.
Reykjavíkurborg bendir á að þetta sé kjörið tækifæri fyrir hverfi borgarinnar til að leggja málefninu lið. Hvetur borgin fjölskyldur til að taka þátt með því að ræða saman við kertaljós um hvernig hver og einn geti lagt Jörðinni lið með breyttri hegðun. Til dæmis með breyttum samgönguvenjum og bættri flokkun við endurvinnslu. Einnig hvernig draga megi úr notkun umbúða og auka sparneytni í orkumálum.
Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndbönd fyrir Jarðarstundina á laugardaginn.