Örvar Geir Geirsson er einn af skipuleggjendum svokallaðra SmokeOut mótmæla á Íslandi.
Mótmælin, sem eru jafnan kennd við tölurnar 4/20, eru haldin um heim allann þann 20. apríl klukkan tuttugu mínútur yfir fjögur.
Þá kemur fólk saman á opinberum stöðum og mælir fyrir lögleiðingu kannabisefna með því að fíra upp í feitum jónum, eins og það er kallað, á almannafæri.
Þetta hafa Örvar og félagar hans gert síðastliðin fjögur ár og ætla að gera áfram.
Harmageddon fékk að kíkja í heimsókn til Örvars og spjallaði við hann um refsistefnu stjórnvalda, grasreykingar og aðeins um skilgreininguna á því hvað er að vera fíkill.
Harmageddon