10 gíra DSG-skipting frá Volkswagen Finnur Thorlacius skrifar 13. maí 2014 14:17 Sjálfskipting frá Volkswagen.
Sjálfskiptingar eru sífellt með fleiri gíra. Kostur þess er ekki síst sá að þá eru vélarnar sem næst réttum snúningi með tilliti til afls og eyðslu. Það er því margt til þess unnið að tryggja að svo sé og strangar reglur um minnkandi eyðslu bíla hefur rekið bílaframleiðendur til þessarar þróunar. Volkswagen er þessa dagana að vinna að 10 gíra sjálfskiptingu með tvöfaldri kúplingu, en ekki er alveg ljóst fyrir hvaða bílgerðir sínar. Í fyrra greindi Volkswagen frá því að fjölgíra skiptingar sem þeir væru að þróa væri ætlaðar fyrir stærri bíla þeirra, svo sem VW Touareg og Audi A8 og væru ætlaðar eingöngu fyrir bíla með afturdrifi eða fjórhjóladrifi. Það hefur líklega ekki breyst og ætti þeir bílar sem fá þessa nýju skiptingu að lækka í eyðslu allt að 15%. Ekki passar þó þessi skipting með öllum vélargerðum Volkswagen, en hún þolir samt að vera tengd vélum sem eru með tog allt að 369 pund-fetum, sem þýðir að margar gerðir bíla Volkswagen bílafjölskyldunnar gætu þó fengið hana. Ford, General Motors og Hyundai eru einnig að þróa 10 gíra sjálfskiptingar og Chrysler 9 gíra skiptingu. Forstjóri Volkswagen Group, Dr. Martin Winterkorn, greindi frá þessari nýju 10 gíra sjálfskiptingu á ráðstefnunni International Vienna Motor Symposium í Vín en þar sagði hann einnig frá nýrri dísilvél Volkswagen sem nær 134 hestöflum úr hverjum lítra sprengirýmis, sem teljast verður ótrúlegt. Því væri t.d. Skoda Octavia með 2,0 lítra vél 268 hestafla bíll og algjör kraftaköggull.
Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Erlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Erlent Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Erlent Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Erlent Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Innlent Úkraínufundinum í London frestað Erlent