Björt framtíð er í óðaönn að gera kosningaskrifstofu sína klára á Glerárgötu á Akureyri og ætlar sér að vera með alls kyns starfssemi í húsinu fram að kosningum. Á fimmtudaginn síðasta var verið að setja upp auglýsingar á húsinu þegar skipulagsstjóri kom að og stöðvaði uppsetningu merkinganna, samkvæmt heimildum Vísis.
Preben Pétursson, einn af stofnendum BF á Akureyri telur skrýtið að Bjartri framtíð hafi verið gert skylt að stöðva uppsetningu merkinga einum flokka. „Okkur finnst við ekki hafa farið út fyrir þann ramma sem settur er. Ég held svo sem að skipulagsstjóri sé bara að vinna sína vinnu, hann óskar eftir því að fá að vita hvað við erum að fara að auglýsa“.
Önnur framboð í bænum eru fyrir margt löngu búin að setja upp merkingar í gluggum sinna kosningaskrifstofa. Þau framboð voru ekki stöðvuð við uppsetningu og ekkert sett út á merkingar þeirra meðan á þeim framkvæmdum stóð.

Ekki náðist í Pétur Bolla Jóhannesson, skipulagsstjóra Akureyrarbæjar, við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Allar fréttir af sveitarstjórnarkosningunum 2014 má nálgast á Kosningavef Vísis, visir.is/kosningar