Ummæli Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, oddvita lista Framsóknar og flugvallarvina í borgarstjórnarkosningunum, hafa reynst afar umdeild, og hafa af mörgum verið túlkuð sem dekur við andúð á innflytjendum.
Sveinbjörg sagði í viðtali við Vísi að hún vildi láta afturkalla lóð til Félags múslima.
Sigmundur segir að eftir að hafa litið yfir umfjöllun undanfarinna daga finnist honum óhjákvæmilegt að skrifa nokkur orð um umræðuna.
„Ljóst er að um sum mál virðist ómögulegt að ræða í samfélaginu af yfirvegun. Það á jafnvel enn frekar við á Íslandi en í nágrannalöndunum þar sem nálægðin er minni og menn hafa að einhverju leyti lært hversu varasamt það getur verið að bæla niður umræðu. Það er vísasta leiðin til að veita öfgahreyfingum hljómgrunn.“
Forsætisráðherrann segir það með ólíkindum hvað menn geti lagst lágt í tilraunum til að koma höggi á pólitíska andstæðinga.
„Þegar menn seilast svo langt að saka heilu hópana um kynþáttaníð að ósekju þá er það ekki bara alvarlegt mál fyrir þá sem fyrir því verða heldur fyrir samfélagið allt. Með því að misbeita slíkum ásökunum er verið að draga úr þeim mikilvæga þunga sem þarf að liggja að baki baráttu gegn kynþáttahyggju.“
Sigmundur skrifar að það sé svosem ekkert nýtt að andstæðingar framsóknarmanna reyni að setja samasemmerki milli þjóðrækni og öfgahreyfinga.
„Hugsanlega vita þeir ekki að þjóðrækni spratt ekki hvað síst af frjálslyndishreyfingunni sem lagði áherslu á frelsi þjóða og mikilvægi menningararfs. Framsóknarflokkurinn er sprottinn úr þessari frjálslyndishreyfingu og framsóknarfólk er almennt stolt af landinu sínu, menningu þess og sögu. Irina Bokova, aðalframkvæmdastjóri UNESCO, sem kom hingað í boði utanríkisráðherra og flutti hátíðarfyrirlestur í Háskóla Íslands á dögunum, undirstrikaði þar að ein af forsendum þess að þekkja og virða sögu og menningu annarra væri að þekkja sína eigin, það væri lykill að mannúð, víðsýni og mannréttindum, sem og þekkingu.“
Sigmundur segist vilja rökræða hluti og leyfa umræðu. Eðlileg niðurstaða sé þá alltaf sú að allir séu fæddir jafnréttháir enda endurspeglast það í stefnu flokksins.
„Frá upphafi hefur Framsóknarflokkurinn verið í fararbroddi í eflingu almannahags og mannréttinda. Það er sama til hvaða hóps er litið, einkum ef litið er til þeirra sem hafa átt undir högg að sækja eða hafa þurft að berjast fyrir jöfnum réttindum, hvað eftir annað hefur Framsókn staðið fyrir úrbótum sem markað hafa tímamót.“
Formaður Framsóknarflokksins segir að það séu ekki frjálslyndir menn sem grípi til þess ráðs að ráðast á pólitíska andstæðinga með því að gera þeim upp þær skoðanir sem verstar þykja.
„Þeir sem ganga fram með þeim hætti bera litla virðingu fyrir staðreyndum. Oft á tíðum er það vegna þess að þeir hafa sjálfir svo lítið fram að færa að þeir þurfa að búa sér til andstæðing til að réttlæta sjálfa sig. En þetta fólk leggur ekki í hvaða andstæðing sem er, það er ekki burðugra en svo að reynt er að festa á andstæðinginn stærsta skotmark sem völ er á.“